þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Já, þetta verður nefnilega að vera á hreinu. Hvað sagði Heather Grabbe, ef ég fer rétt með nafnið, á síðasta föstudag? 95% er það þannig að menn ganga bara inn og þurfa að undirgangast það sem þar er fyrir. Síðan færðu aðlögun, ákveðinn tímafrest, til að uppfylla hitt. Það var staðan. Það hlýtur enn sem komið er að vera talsamband við útlönd. Það þarf ekkert að fara í miklar viðræður til að fá þetta á hreint. Er möguleiki að fá það fram strax að við séum með full yfirráð og varanleg yfir sjávarauðlindinni og orkuauðlindunum og flestu sem okkur langar til að ráða ef miðað er við orðræðuna hér? Sú staða hlýtur að vera uppi að hægt sé að nálgast þessar upplýsingar, alla vega miðað við það sem maður les og heyrir af embættismönnum í Brussel.