þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir afbragðsgóða ræðu. Það voru mörg atriði sem ég hefði viljað koma inn á hér en tíminn er takmarkaður. Þetta atriði sem hv. þingmaður byrjaði á, með að ríkisstjórnin geri lítið úr málinu, ég hafði ekki hugsað þetta í þessu samhengi; það blasir auðvitað við þegar það er sagt. Það er eins og ríkisstjórnin sé stoltari af skattahækkunarmálum, málum sem þvælast fyrir atvinnulífinu og þar fram eftir götunum, heldur en þessu stærsta máli sínu, hvað sem veldur. Forsætisráðherra ætlar ekki að mæta hér til að halda ræðu, svo að menn átti sig á hlutum eins og t.d. því hvað breyttist síðan í aðdraganda kosninga og fleira mætti telja.
Hv. þingmaður kom inn á hlut sem skiptir miklu máli hér undir lok ræðu sinnar er varðar það hverju ríkisstjórnin ætlar ekki að einbeita sér að á meðan. Í því samhengi má fara yfir í fjármálin og kostnaðinn og hluti því tengdu. Nú styttist í að fjármálaáætlun verði lögð fram. Það er í rauninni eini punkturinn sem ég held að ríkisstjórnin geti svarað því til hvaðan fjármunir verða dregnir inn í þetta verkefni. Ætli það hafi verið upptakturinn að þessum feluleik í fyrra þegar við ræddum fjármálaáætlun sem vantaði allar efnislegar sundurliðanir, 200 bls., miðað við það sem venja var? Telur hv. þingmaður að þarna gæti legið skýringin á því m.a. hvers vegna hefur verið svona erfitt að draga upplýsingar út úr ríkisstjórninni hvað fjármálaáætlun og fjármál ríkisins almennt varðar? Að það verði bara, eins og með þetta mál allt, einhver svona slikja, einhver móða, yfir því hver markmiðin eru, (Forseti hringir.) hvernig á að ná þeim fram og hvernig á að forgangsraða?
En spurningin er: (Forseti hringir.) Telur hv. þingmaður að það verði til bóta hvað umræðuna (Forseti hringir.) varðar ef fjármálaáætlun, svo að ég spyrji um annað mál, verður lögð fram með sama hætti og (Forseti hringir.) gert var við síðustu framlagningu?
(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmenn á tímamörkin.)