157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:20]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir mjög áhugaverða spurningu. Ég hafði ekki leitt hugann að þessu samhengi, ég skal viðurkenna það. En þegar hann nefnir þetta þá rifjast það upp að það vakti mikla furðu hér fyrir tæpu ári að fjármálaáætlun leit dagsins ljós og í rauninni með engum upplýsingum. Það var í raun tilgangslaust að ræða hana. Látum það liggja á milli hluta að hæstv. fjármálaráðherra hafi strax svarað því á þann veg á sínum tíma að þetta væri nú bara eins og gert hefði verið síðast, eða hvernig svo sem það var nú orðað, en það stóðst auðvitað enga skoðun við nánari eftirgrennslan. Ég ætla ekki að gerast neinn spádómskisi um það hvernig fjármálaáætlun muni líta út en ég held að það sé mikilvægt að fólk sé almennt á vaktinni hvað þetta varðar. Auðvitað hefur það blasað við, frá því að þessi nýja hæstv. ríkisstjórn, sem nú er rúmlega ársgömul, tók við völdum, að ekki hefur verið mikil virðing borin fyrir umræðum hér, fyrir að upplýsa þingið og annað slíkt. En þá fæ ég bara að nefna aftur punktinn sem ég kom að hér áðan: Að leyfa sér slíkt í því máli sem hér er undir, máli sem heill stjórnmálaflokkur, Viðreisn, var í raun búinn til í kringum, hlýtur að vekja upp furðu. Ég trúi ekki öðru en að fólkið í landinu hljóti að spyrja sig af hverju það fái ekki þessar eðlilegu upplýsingar. Ég meina, það er gott og vel; við erum búin að vera í þessu ati hér í rúmlega ár og höfum séð ýmislegt frá þessari ríkisstjórn sem því miður ber ekki góðan vott um virðingu fyrir lagasetningarferlinu eða löggjöf yfirleitt eða löggjafarhlutverkinu o.s.frv. (Forseti hringir.) En það kemur mér hreinlega á óvart að fólkinu í landinu sé sýnd sama óvirðing.