þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki S. Svavarssyni fyrir andsvarið. Ég tek undir með honum, og mér heyrist við vera sammála um að pólitíska hliðin blasi við, að ástæðan fyrir því að ríkisstjórnin treystir sér ekki til að segja, þótt ekki væri nema í einni setningu, hátt og skýrt og sameiginlega, hvað er unnið fyrir íslenska þjóð með því að fara í þessar viðræður. Það hlýtur að blasa við að það er mjög eðlileg krafa ef fara á í þessa vegferð á annað borð og að það liggi fyrir af hverju fólki finnst það skynsamlegra en ekki. Auðvitað blasir pólitíska staðan við, að ríkisstjórnin er einfaldlega ekki sammála um það. Gott og vel og ég veit að ríkisstjórnin gerir mikið úr því að þau vinni samt sem áður saman og að þetta sé allt saman bara hið besta mál. En þetta er auðvitað alveg stórfurðuleg staða. Það er ekki raunveruleg pólitísk eining um svona risastórt mál í ríkisstjórninni, sem myndi alltaf fara fyrir málinu, halda á hagsmunum Íslands, o.s.frv., að það sé ekki samhljómur þar innan borðs. Það er bara stórundarlegt. Það var þannig þegar við fórum síðast í þessa vegferð og það steytti á skeri. Það þarf ekkert að eyða frekari orðum í það. Þannig að sérstaklega í því ljósi, og eins og hv. þingmaður kemur réttilega inn á, þá vitum við í botn og grunn ekki nema að eitthvað stórkostlegt breytist við komu okkar að samningaborðinu, ég veit það ekki. Kannski trúum við á kraftaverk, ekki ætla ég að útiloka það. En við vitum samt í rauninni hvað er í boði. Það hafa alveg nógu margir sagt okkur að það sé ekki mikið verið að veita varanlegar undanþágur frá þessum stærstu póstum. Ef þetta væru samningaviðræður sem hefðu verið flöktandi í þessa áratugi þá væri þetta kannski öðruvísi, en við vitum sirka hvað bíður okkar og við vitum að ríkisstjórnin er ekki samstiga og þess (Forseti hringir.) þá heldur er svo mikilvægt að í því lögformlega plaggi sem verður lagt fyrir þjóðina (Forseti hringir.) liggi fyrir skýrt hvar sársaukamörk Íslands liggja.