157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:34]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Þetta er mjög áhugaverð umræða sem á sér stað hérna í dag og í gær og verður í rauninni áhugaverðari eftir því sem klukkutímarnir líða, um þessa þingsályktunartillögu sem var dembt hingað inn í þingið með litlum fyrirvara um framhald viðræðna um aðild Íslands að ESB. Mér hefur fundist í þessari umræðu, eftir að hafa fylgst vel með henni hérna síðustu klukkutímana og í gær, að þingmenn stjórnarmeirihlutans leggi, og væntanlega meðvitað, ansi mismunandi skilning í spurninguna sem lögð er til í tillögunni. Það er eins og verið sé að reyna að túlka spurninguna þannig að um sé að ræða nokkurs konar viðhorfsspurningu. Hvað finnst þér? Eigum við að fela ráðamönnum að halda áfram spjalli við hina háu herra og frúr úti í Evrópu og sjá hvað gerist? Allt eins og þetta sé voða sakleysislegt og einfalt. En þeir sem hér í þingsal og annars staðar í samfélaginu eru að velta upp ýmsum hliðum þessa máls og hvað þessi atkvæðagreiðsla sem fyrirhuguð er þýðir í raun og veru eru vændir um að treysta ekki þjóðinni. Það er lína sem klifað er á. Þeir sem setja einhver spurningarmerki hér við eru vændir um að treysta ekki þjóðinni. Maður gæti spurt frekar: Hver á að treysta hverjum og hverju er hægt að treysta?

Við sem erum að spyrja þessara spurninga og finnst komið að hlutunum á dálítið einfaldan hátt, treystum einmitt þjóðinni svo vel. Við viljum að hún ráði áfram sínum málum sjálf en afsali ekki fullveldi sínu til Brussel. Ég held að það sé almennt viðhorf þeirra sem taka þátt í þessari umræðu og velta fyrir sér hvað er eiginlega verið að fara fram á hér. Það er líka eðlilegt að spyrja á móti: Er hægt að treysta ríkisstjórninni þar sem leiðtogi hennar snarbreytir um kúrs í svona gríðarlega stóru hagsmunamáli eins og um ræðir, breytir um afstöðu í slíku máli má segja á örskotsstundu, treysta formanni Samfylkingarinnar sem í aðdraganda alþingiskosninga lagði áherslu á að ESB-aðild yrði ekki forgangsmál, það væru önnur mál brýnni? En þegar atkvæðin voru komin í hús, atkvæði þeirra sem treystu þessum formanni, þá var snarlega skipt um skoðun, allt til að þóknast öðrum samstarfsflokknum í ríkisstjórn. En ekki er bara verið að þóknast samstarfsflokknum heldur lítur út fyrir að verið sé að flýja raunverulegu vandamálin sem blasa við í stjórn efnahagsmálanna þar sem verðbólga, háir vextir og vaxandi atvinnuleysi er raunveruleikinn sem þarf að takast á við.

Einhver gæti spurt hvort hér ríki þá orðið stjórnarkreppa. Einn flokkurinn í ríkisstjórn er alfarið á móti ESB-aðild. Samfylkingin skiptir um skoðun eftir kosningar og virðist reyndar dálítið misjafnt hljóðið í þingmönnum hennar hvað þetta varðar. Og svo Viðreisn sem nú ætlar að þoka sínu helsta stefnumáli áfram, sama hvað það kostar. Ljóst er að ekki er þingmeirihluti fyrir því að fara út í aðildarviðræður við ESB sem er einstakt á meðal ríkja sem hafa farið í umsóknarferli. Því er málinu nú í raun skotið til þjóðarinnar að því er virðist til að verða við kröfu þess stjórnarflokks sem um ræðir.

Þá að spurningunni sem á að leggja fyrir þjóðina. Þjóðaratkvæðagreiðsla getur verið gott og gilt lýðræðislegt tæki. En þá þarf að spyrja réttrar spurningar og þá þarf spurningin að skiljast. Þjóðin þarf að vita við hverju hún er að segja já eða nei. Ég tek undir það sem margítrekað hefur verið komið inn á hér í umræðunni, að það er lágmark að upplýsa um hvaða skilyrði á að setja og hvaða undanþágum íslensk stjórnvöld telja sig geta náð. Það hefur bara alls ekki komið fram í þessari umræðu. Hvað er það nákvæmlega? Og svo tekur steininn úr þegar nú undir kvöldmatarleytið er haft eftir hæstv. forsætisráðherra í viðtali við Ríkisútvarpið að hún muni selja landið fokdýrt. Selja landið? Hvað þýðir það? Hvernig ætlar hún að útskýra það fyrir þingheimi og þjóðinni? Hvað á hún við? Selja landið fokdýrt? Þetta mál er alltaf að vinda upp á sig. Það er ekki búið að vera hérna lengi til umræðu en bara eftir því sem klukkutímarnir líða þá koma alltaf upp nýir fletir. Nú á að selja landið fokdýrt. Ég hugsa að mörgum hafi brugðið við að heyra þetta.

En hvað er það sem fæst með aðild sem gerir íslenskt samfélag betra en það er í dag? Við þurfum að fá svör við þessu áður en til atkvæðagreiðslu kemur því að við vitum að með þessari atkvæðagreiðslu er verið að kjósa um aðild að ESB. Að halda öðru fram er blekking eða útúrsnúningur því aðlögun hefst strax. Það vita það allir sem hafa fylgst með þessum málum lengi og þeir sem eru fróðari okkur mörgum hérna í því hvernig þessir hlutir virka. Það bara er þannig. Verði tillagan samþykkt þarf strax að fara í að breyta ýmsum lögum til að aðlagast ESB og það hefur ýmsar aðrar afleiðingar í kjölfarið. Því ætti að spyrja beint: Vilt þú að Ísland gangi í ESB? Eða: Viltu halda áfram viðræðum um aðild Íslands að ESB með það að markmiði að ganga inn í Evrópusambandið? Þetta er upphafið að þeirri vegferð að koma Íslandi inn í ESB. Það þurfa bara allir að viðurkenna það sem að málinu koma.

Það hefur líka ítrekað komið fram og verið rifjuð upp ýmis ummæli héðan og þaðan um þær staðreyndir að það hafa engar varanlegar undanþágur verið veittar. Það er kannski hægt að semja um lengd aðlögunartímans, einhverjar sérleiðir hægt að fara í því sambandi en það verða ekki undanþágur, segja þeir sem best til þekkja. En ef stjórnarþingmenn eða ráðherrar hafa aðrar upplýsingar þá ættu þær að koma fram. Eru aðrar upplýsingar til? Kannski er hægt að fá svör við því í Brussel. Kannski fréttum við það á morgun frá Brussel, eins og margt sem hefur tengst þessu máli sem hefur komið beint frá Brussel en ekki í gegnum ráðherra okkar hér á Íslandi.

Það er ekki nema von að spurt sé að þessu þar sem við erum í góðu samstarfi við önnur Evrópuríki og EES-samningurinn hefur reynst okkur afar vel. Það eru miklar kröfur og regluverksfargan, eins og margir vilja kalla það, sem fylgja Evrópusambandinu sem mörg okkar telja að verði síður en svo til hagsbóta fyrir okkar þjóð. Og svo er spurning, fyrst verið er að fara út í þjóðaratkvæðagreiðslu af þessu tagi, þær eru nú ekki algengar hér á landi: Af hverju er þá ekki bara spurt í leiðinni um viðhorf fólks til bókunar 35? Væri það ekki tilvalið? En við þurfum áður en lengra er haldið að fá betur úr því skorið, fá a.m.k. viðhorf þeirra sem eru að leggja þetta til, hversu bættari við verðum með því að fara inn í ESB. Við vitum að Ísland er eitt af ríkustu löndum Evrópu og landsframleiðsla mjög há í samanburði við ESB-lönd og þótt atvinnuleysi sé að aukast er það talsvert lægra en að meðaltali í ESB-ríkjunum. Þannig að við þurfum að tala mannamál í þessu, ekki með einhverjum fullyrðingum um að menn ætli svo sannarlega að ná góðum samningum og það muni ekki gerast á minni vakt eða hinni vaktinni, og ég tala nú ekki um þessi nýjustu ummæli forsætisráðherra um að hún muni selja landið fokdýrt.