157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:44]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu. Ég veit ekki hvort ég get tekið undir það að þessar umræður hafi verið áhugaverðar. Ég hef einnig verið að fylgjast með þeim og mér finnst þær reyndar oft hafa leiðst út í ýmiss konar fabúlasjónir, með leyfi forseta, og miklar endurtekningar.

En í ljósi þess að þingmaðurinn vildi spyrja með öðrum hætti, vildi ekki spyrja um hvort halda eigi áfram með viðræðurnar heldur bara hreinlega hvort viðkomandi vilji ganga í ESB eða ekki, þá spyr ég: Er það ekki líka viðhorfsspurning eða viðhorfskönnun? Hver er munurinn? Hv. þingmaður vill ekki að það sé einhver viðhorfsspurning eða viðhorfskönnun og nefnir í því sambandi að það að spyrja um áframhaldandi umræðu sé viðhorfsspurning, en er spurning um að ganga í ESB ekki líka viðhorfsspurning? Það væri gott að fá þetta skýrara fram, þetta er mjög óljóst.

Það er annað sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í. Þingmaðurinn sagði að stjórnarandstaðan væri vænd um að treysta ekki þjóðinni en sagði síðan nánast eftirfarandi orðrétt, með leyfi forseta: „Við treystum þjóðinni en við viljum ekki að hún afsali sér fullveldinu.“ Að mínu viti er þetta ekki beinlínis að treysta. Stjórnarandstaðan vill ekki hafa þessa könnun í ljósi þess að þjóðinni er ekki treyst því að hún gæti mögulega afsalað sér fullveldinu. Þessi setning er beinlínis ekki merki um traust. Þarna er verið að reyna að hafa vit fyrir þjóðinni, reyna að hafa vit fyrir henni og koma í veg fyrir að hún falli í þessa stóru gryfju, mögulega að afsala sér fullveldinu. Hér er gríðarlega mikil flækja í gangi sem mjög gott væri að fá nánari skýringar á.