þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Þingmaðurinn kom inn á það við upphaf ræðu sinnar að þetta mál hefði augljóslega ekki verið í forgangi hjá þeim flokkum sem nú mynda ríkisstjórn. Það má segja að einn þeirra, Viðreisn, hafi haldið því til haga að þetta væri nú mikilvægt mál í þeirra huga en var greinilega alveg úrkula vonar að neitt gæti orðið úr þeim vangaveltum eftir kosningar. Samfylkingin gerði beinlínis í því að sannfæra fólk um það að þetta mál væri komið í kælinn, ef svo má segja, og Flokkur fólksins var grjótharður á móti eins og flokkurinn hefur sagst vera um langa hríð. Man hv. þingmaður eftir viðlíka viðsnúningi í seinni tíma kosningum? Man hv. þingmaður sömuleiðis eftir því að allir stjórnarflokkar, eins og við okkur blasir núna, hafi strax eftir kosningar horfið hver og einn frá lykilloforði sínu? Ef við einblínum bara á þetta tiltekna mál þá er það engin smá aðgerð fyrir flokk eins og Samfylkinguna sem hefur alla tíð verið áfram um að Ísland gerist fullur aðili að Evrópusambandinu og það beinlínis stendur á heimasíðu flokksins. Það er gert mikið úr því að þetta mál sé frá, sé ekki áhersluatriði nú um stundir en svo birtist það okkur hérna með þeim hætti sem það er og er einhver vond blanda af — hvað er hægt að kalla það, yfirlæti, aulagangi? Ég veit það ekki. Tilætlunarsemi, hortugheit nefndi hv. þm. Hildur Sverrisdóttir hérna áðan. (Forseti hringir.) Nálgunin og framsetningin er öll í því marki brennd að ríkisstjórnarflokkarnir, og sérstaklega Samfylkingin, vilji ræða málið sem minnst. Man hv. þingmaður eftir einhverju viðlíka svona á seinni stigum?