þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Nei, ekki í svipan man ég eftir öðru eins því eins og þingmaðurinn rifjar upp og hefur komið til umræðu hérna í þingsal síðustu klukkutímana þá var þetta mál sem formaður flokksins og flokksfélagar kældu í síðustu kosningabaráttu og varð til þess m.a., kannski önnur mál líka en sérstaklega þetta mál, að fylgið snarjókst hjá viðkomandi flokki, hjá Samfylkingunni, og svo komust þau í þessa stöðu sem þau eru í í dag. Þetta hefur verið kalkúleruð ákvörðun, meta kjósendur þannig að þetta væri ekki málið til þess að setja á oddinn. En svo þarf auðvitað að gera málamiðlanir þegar ólíkir flokkar koma að samstarfi, hvort sem er í ríkisstjórn eða sveitarstjórn. En þetta er þvílíkur viðsnúningur í þvílíkt stóru máli að ég efast um að annað eins þekkist hreinlega, (Forseti hringir.) ég verð bara að segja það. Ég man ekki eftir öðru eins, það kemur alla vega ekki upp í hugann. Ég kem kannski aðeins nánar inn á það í öðru andsvari.