þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ágætisræðu og ég ætla að vera á svipuðum slóðum og forveri minn í ræðustól, hv. þm. Jens Garðar Helgason, sem snýr að þeirri orðræðu, þeirri villandi orðræðu sem hefur átt sér stað í umræðuþáttum, í viðtölum og í umræðu hér í sal þingsins um varanlegar undanþágur og að hafa fullt forræði yfir auðlindum. Þetta er eitt af þessum lykilatriðum sem þjóðin þarf að vita áður en fleiri skref eru tekin. Ég ætla, frú forseti, að fara aðeins yfir ákveðna þýðingu sem ég datt niður á sem snýr að því þegar aðildarríki sækir um aðild. Með leyfi forseta, er það svona:
„Í aðildarviðræðum við Evrópusambandið er meginreglan sú að umsóknarríkið tekur upp allt regluverk við inngöngu. Í framkvæmd hefur þó engu ríki tekist að innleiða allt regluverk á sjálfum aðlögunardegi“ — sem er svo sem mjög eðlilegt — „og því eru tímabundnar undanþágur óhjákvæmilegur hluti af aðlögunarferlinu.“
Öll þau orð sem hafa fallið hér í umræðu um fullt forræði og varanlegar undanþágur yfir auðlindum okkar ríma engan veginn við þá orðræðu sem hefur verið hér og þennan texta og það sem embættismenn úti í Brussel hafa sagt, þar með Heather Grabbe (Forseti hringir.) sem vitnað var til í ræðu hv. þingmanns. Er hv. þingmaður (Forseti hringir.) sammála mér um að það sé verið að slá ryki í augu almennings til þess eins að fá almenning til að segja já?