157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:29]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög skýrt og gott svar. Ég ætla að halda áfram um þá orðræðu sem viðhöfð hefur verið hér af bæði hæstv. forsætisráðherra og utanríkisráðherra þar sem er vísað til þess að nú sé allt breytt, þar sem við erum sterk þjóð, sjálfstæð þjóð og Evrópusambandið komi til með að beygja frá þeim grundvallarreglum sem það hefur hingað til unnið með, virðist vera miðað við þá orðræðu. Því finnst mér það vera alveg augljóst að það hljóta að hafa átt sér einhverjir fundir milli forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar við aðila í Evrópusambandinu um væntanlegt aðlögunarferli eða umsóknarferli. Þurfum við ekki að fá öll gögn, allar fundargerðir, (Forseti hringir.) allt upp á borðið til að við sjáum hvort það sé eitthvað sem hefur gefið því undir fótinn að þessi orðræða sé viðhöfð hér af ráðamönnum þjóðarinnar?