þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Svarið er einfalt: Jú, auðvitað á að birta öll þessi samskipti. Hæstv. forsætisráðherra og hæstv. utanríkisráðherra sömuleiðis hafa lýst því með hvaða hætti ráðherrarnir hafa átt samtöl við háttsetta embættismenn í Brussel þar sem eitt og annað hefur komið fram sem við fáum ekki að vita, ekki einu sinni utanríkismálanefnd í trúnaði. Síðan er því haldið fram að allt sé breytt. Ef samningsstaðan er svona miklu betri núna en hún var þegar Jóhanna, Steingrímur og Össur voru að paufast í þessu hérna 2011, 2012, 2013, af hverju ætla menn þá að nota þann grunn sem grunninn til að byggja þessar viðræður á? Það eru engin samningsmarkmið sem liggja fyrir önnur en samningsmarkmið Jóhönnustjórnarinnar. Það var búið að loka, ef ég man rétt, einum 11 köflum af 35. Allt sem liggur frammi og liggur fyrir í þessum efnum er frá tíð vinstri stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar. Það er óskiljanlegt (Forseti hringir.) að ríkisstjórnin ætli sér að nota þann grunn og halda því fram á sama tíma að nú sé allt breytt og betra.