þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen andsvarið. Fyrst að spurningunni: Hverju á almenningur að fylgjast með og hafa augu og eyru opin gagnvart? Við því myndi ég segja, hvað varðar varanlegar undanþágur eða ekki: Fylgist með því sem Evrópusambandið sjálft segir en ekki því sem ríkisstjórnin eða þingmenn stjórnarflokkanna, sem einhverra hluta vegna fylkja sér á bak við þetta mál, segja. Hlustið bara á það sem Evrópusambandið segir og lesið það sem Evrópusambandið skrifar á sínum miðlum. Það bara liggur fyrir skriflega að það er engar varanlegar undanþágur að fá. Þarna varð grundvallarbreyting á 2004 sem ég fer yfir í lengra máli í pistli í Morgunblaðinu í fyrramálið fyrir þá sem hafa áhuga. Þetta hefur verið staðan síðan 2004. Þetta var staðan árið 2011, 2012 og 2013 þegar Össur var að paufast í þessu; Össur Skarphéðinsson, þáverandi hæstv. utanríkisráðherra. Stefan Füle, stækkunarstjóri þess tíma, var alveg skýr með þetta. Bæklingar Evrópusambandsins eru alveg skýrir með þetta. Heather Krabbe, sem ég kom inn á í ræðu minni, er mikill sérfræðingur um þessi mál og mikil áhugamanneskja um stækkun Evrópusambandsins og viðgang þess og vöxt þannig að hún hafði engan sérstakan hvata til að tala með þeim hætti sem hún gerði í viðtali við Ríkisútvarpið síðastliðinn föstudag. Allt ber þetta að sama brunni.
Það er auðvitað ákveðin hætta að menn verði óljósir í orðalagi til að það valdi ekki vandræðum. Það er auðvitað þannig að Evrópusambandið vill gjarnan fá þjóð eins og Ísland inn sem yrði, ef ég man rétt, sjöundi nettógreiðandinn inn í Evrópusambandið; sjöunda þjóðin sem borgaði meira inn í sjóði Evrópusambandsins en kæmi til baka. Auðvitað vilja menn fá slíka þjóð, þó lítil sé, inn í selskapinn. Fólk ætti endilega að hlusta eftir þessu, lesa og glöggva sig á hlutunum. Þá held ég að myndin skýrist hratt en ég ætla að koma betur inn á varanlegu undanþágurnar og pennastrikin á eftir.