þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er frétt í þessu svari. Það sem við erum að sjá núna er að nú mun umræðan hér breytast. Nú munu hv. þingmenn stjórnarliðsins kannast við það að þetta er leið til að komast inn í Evrópusambandið. Þá hljótum við að ræða kosti og galla Evrópusambandsins. Hv. þingmaður, við sáum það öll, hann ætlar að ræða kosti og galla Evrópusambandsins. Ég vona að hann verði ekki einn. Ég horfi hér á tvo stjórnarliða, jafnvel þrjá. Ég hvet þá til að gera þetta líka. Hv. þm. Ingvar Þórhallsson benti réttilega á að auðvitað vitum við hvað Evrópusambandið er. Við skulum ræða það hvort húsnæðið verði allt í einu rosa ódýrt og ofsalega ódýr lán ef við göngum í Evrópusambandið. Fjölskyldumeðlimur minn var nú bara í námi í Danmörku í vetur í Kaupmannahöfn. Það var ekki ódýrt húsnæði. Ég get alveg sagt ykkur það. (Forseti hringir.) Evrópusambandið bjargaði því ekki. Við skulum ræða þetta, ég næ því ekki í þessu stutta svari hér en núna erum við að fara að tala saman. (Forseti hringir.) Nú erum við að sjá annan tón í umræðunni hjá stjórnarliðum og, (Forseti hringir.) virðulegi forseti, ég fagna því að loksins sé verið að tala um það sem skiptir máli.