þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Stutta útgáfan er þessi: Að trúverðugleiki forsætisráðherra hafi beðið hnekki? Ég vil bara segja: Trúverðugleikinn hefur skaðast verulega. Það heyrðu allir hvað forsætisráðherra sagði fyrir kosningar. Það heyrðu allir að flokkur forsætisráðherra fór upp í skoðanakönnunum þegar forsætisráðherra byrjaði að tala með þeim hætti. Hún er að lenda á sama stað og fyrrverandi fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna sem sagði skýrt á kosningafundi í sjónvarpinu fyrir kosningarnar 2009 að ef Vinstri grænir færu í ríkisstjórn myndu þeir ekki sækja um aðild að Evrópusambandinu. Hún er á nákvæmlega sama stað. Hv. þingmaður vísaði til þess að valdið færi lengra frá kjósendum. Það fer sko miklu lengra frá kjósendum. Sex þingmenn í 750 manna þingi, það eru þeir einu sem eru kosnir. Fulltrúar framkvæmdastjórnarinnar mega ekki vinna fyrir viðkomandi land. Þeir eru svo sannarlega ekki kosnir. Bara í Bretlandi — hverjir voru þar? Ég fylgdist svolítið með því. Neil Kinnock var einu sinni miklu valdameiri en ráðherrarnir í ríkisstjórn Bretlands. Hann tapaði kosningum alveg eins og hann gat. Og svo er það annar karl, Peter Mandelson, sem hefði ekki einu sinni unnið kosningu í stigagangi nokkurs staðar í Bretlandi á neinum tíma. Hann var í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, enginn kaus hann. Einn allra óvinsælasti maður Bretlands þá og enn óvinsælli núna út af „dotlu“ sem við ætlum ekki að ræða hér. Við erum að framselja vald og fara í stofnun þar sem enginn veit hver ber ábyrgðina.