157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:11]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þessi svör. Ég er aðeins með viðbótarspurningar til hv. þingmanns. Það var afar athyglisvert að hlýða á þegar hv. þingmaður var að fara yfir reglugerðir sem eru innan borðs hjá ESB og lúta að veiðum á til að mynda fuglum. Við þurfum ekki slíkt varðandi veiðar á hval og heimskautaref. Það er afgerandi. En ég velti því fyrir mér í allri umræðunni hér um mikilvægi upplýsingagjafar hvort hv. þingmaður telji að samfélag veiðimanna á Íslandi sé til að mynda meðvitað um þetta, að það ákvörðunarvald muni verða fært til Brussel um hvað og hvenær þeir megi veiða hvað. Svo ein örstutt hér í lokin sem er aðeins mér til, hvað á ég að segja, upplýsingar: Hvað sér hv. þingmaður fyrir sér ef þetta ferli rennur sitt skeið og niðurstaðan er nei, afgerandi nei (Forseti hringir.) og þessu ferli er lokið, hver verður þá tilgangur (Forseti hringir.) og afdrif Viðreisnar? Hvað er eftir?