157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:14]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Virðulegi forseti. Hér erum við að ræða þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem spyrja á hvort aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið skuli fram haldið. Tillagan gengur út á það að eftirfarandi spurning verði borin upp: Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Það verða gefnir tveir svarmöguleikar: Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu; eða nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Um það hverfist nú þetta mál og spurningarnar eru tiltölulega einfaldar. Það getur vel verið að það verði mjótt á mununum í svörunum en svörin verða skýr: Annaðhvort já eða nei. Þá er það þannig að ef það verður nei þá er málinu einfaldlega lokið. Við förum ekki í viðræður og fáum ekki tækifæri til að vita hvað aðild þýðir. Ef já, þá bíður okkar vinna við samningaborðið sem endar með samningi sem borinn verður undir þjóðina. Við erum hér að tala um að ferlið verði í tvöfaldri þjóðaratkvæðagreiðslu. Þegar samningurinn liggur fyrir þá vitum við hvað aðild þýðir og getum tekið upplýsta ákvörðun um hvort við viljum eða viljum ekki ganga í Evrópusambandið. Við getum velt fyrir okkur kostum og göllum samningsins. Við munum þá vita hvaða lög og reglur við höfum tekið upp, hvað er eftir og getum hætt að deila um ýmis mál.

Hvernig ætlum við að gera þetta? Jú, það er alveg ljóst í þingsályktunartillögunni hvernig þetta ferli fer fram. Í 6. lið þingsályktunartillögunnar er fjallað um framkvæmdina, samræmi við kosningalög, nr. 112/2021, 2. mgr. 2. gr., og þar er fjallað um hvernig þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram. Ég man eftir því að þegar ég var í kosningabaráttunni þá var maður nokkrum sinnum spurður hvert fallegasta orðið í íslensku væri. Orð eins og ljósmóðir og blágrýti komu upp en nýja uppáhaldsorðið mitt í íslenskri tungu er þjóðaratkvæðagreiðsla. Það segir svo margt og þegar maður hugsar um það hvernig þetta verður gert, hvað þetta þýðir, að þjóðin geti komið saman og kosið um þetta mál sem er búið að vera í umræðu árum saman — og þau sem hafa hlustað á umræðuna hérna síðustu tvo daga eru örugglega bara engu nær um þetta. En það sem er augljóst fyrir alla sem hafa hlustað á þessar ræður, sem eru núna orðnar ef við tökum andsvör með vel yfir 100, er að það eru mjög skiptar skoðanir um það raunverulega hvað við erum að fara í í samningunum. Þess vegna skiptir máli að við skoðum 5. lið þingsályktunartillögunnar, þar er fjallað um bæði þau samningsmarkmið sem var lyft upp í aðildarviðræðum 2010–2013 og einnig fjallað um það hvernig samningsmarkmiðin verða undirbúin í framhaldi af þjóðaratkvæðagreiðslunni ef við ætlum að fara áfram.

Það hefur verið rætt hér fram og til baka um ýmsar undanþágur eða sérlausnir eða hvaða nafni sem við höfum kallað þær. En það er alveg skýrt, það hefur komið fram hjá öllum þeim stjórnarliðum sem ég hef hlustað á tala, það kom fram hjá ráðherrunum þegar þeir töluðu á blaðamannafundinum, það kom fram í framsögu utanríkisráðherra, það hefur komið fram aftur og aftur frá forsætisráðherra, að við þurfum góðan samning til þess að hann verði samþykktur og til að flest okkar muni samþykkja hann. Góður samningur er sá samningur sem mun fjalla um sérstöðu Íslands þegar kemur að orkumálum, þegar kemur að landbúnaði, þegar kemur að sjávarútveginum og öðrum auðlindum, jafnvel heiðagæsinni, og almennt þá staðreynd að við erum fullvalda þjóð sem býr á eyju úti í miðju Atlantshafinu. Við getum horft til samninga Finna um bændur á norðurslóðum þegar kemur að sérstökum aðstæðum. Við getum líka horft til skýrslu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands þar sem fjallað er um samningaviðræðurnar frá 2014. Þar segir m.a., með leyfi forseta:

„Embættismenn ESB hafa bent á að sjávarútvegsstefnan er ekki eins stíf og hún er talin og klæðskerasniðnar lausnir séu algengar innan sambandsins.“

Þetta munum við ekki fá almennilega að vita fyrr en við erum búin að setjast niður og semja um þetta.

Virðulegur forseti. Já, við erum að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hún er fyrirhuguð 29. ágúst næstkomandi. Þú verður að fyrirgefa mér, frú forseti, að sá sem hér stendur er svona — fyrirgefið slettuna — praktískur maður að því leytinu til að ég vil bretta upp ermar og fara að vinna. Ég sit í hv. utanríkismálanefnd og mér finnst mjög mikilvægt að málið fari að komast til nefndarinnar sem allra fyrst. Þar þurfum við að vinna vel. Við þurfum að taka á móti gestum. Við þurfum að lesa umsagnir, við þurfum að hlusta á mismunandi sjónarmið. Við verðum að vanda vinnu okkar í utanríkismálanefnd. Það hefur dálítið verið fjallað um það hér í þingsalnum hvort sé hægt að treysta því að utanríkismálanefnd muni vinna þetta mál vel. Ég mun alla vega fyrir mitt leyti leggja það til og leggja mitt af mörkum til þess að það verði gert og ég er sannfærður um það að nefndin muni leggja mikla vinnu í þetta mál.

Virðulegur forseti. Eina leiðin til þess að við hættum að giska, spá og rífast um það hvernig samningur fyrir Ísland muni líta út er að gera samninginn. Þess vegna erum við að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um að halda eða halda ekki áfram aðildarviðræðunum. Við getum haldið áfram að tala um þetta hér í marga daga og jafnvel mörg ár en það eina sem mun skipta máli er að þegar samningurinn er kominn á borðið er það eina skjalið sem skiptir máli og þá getum við verið viss um það að við getum tekið upplýsta ákvörðun um hvort, og þá hvenær, við viljum yfir höfuð ganga í Evrópusambandið.