þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar andsvar og hennar spurningar. Við getum velt því fyrir okkur hér á þinginu endalaust hvenær mál eru vel unnin og hvenær ekki. Það eru auðvitað fjölmörg dæmi um það að þingmál hafi ekki verið send í samráð, ég geri ráð fyrir að það sé það sem hv. þingmaður er að vísa til. Ég get ekki betur séð en að á bak við greinargerðina liggi talsvert mikil vinna og greiningar, þannig að það hefur ekki verið auðvelt. Það hefur komið fram í í máli ráðherranna að það hefði verið leitað til stjórnsýslufræðinga um orðalagið og annað slíkt þannig að ég get ekki betur séð en að að þessu leyti sé þetta vel unnið. Ef eitthvað vantar upp á þá er það utanríkismálanefndar að bæta úr því og vinna sína vinnu í málinu eins og ég hef sagt og mun halda áfram að segja að ég muni taka þátt í og gera og get lofað hv. þingmanni því að það mun ekki standa á mér í því.