þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Þetta eru allt saman góðar hugleiðingar um hvað er gott, hvað er vel unnið og hvað er ekki vel unnið. Við getum haldið áfram að velta því fyrir okkur. Þessi þingsályktunartillaga snýr að því að það sé þjóðaratkvæðagreiðsla, hvernig eigi að framkvæma hana og um umgjörðina í kringum hana og hvaða spurningum er varpað fram í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Eins og við höfum orðið vitni að síðustu tvo daga í þinginu eru mjög skiptar skoðanir á því hversu djúpt ætti að fara í að skoða samningsmarkmið eða hvort það hefði átt að velta fyrir sér fleiri þáttum varðandi samningaviðræður við Evrópusambandið eða ekki. En þessi þingsályktunartillaga snýst um það hvernig við ætlum að framkvæma þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Varðandi aðkomu þingsins eða hvort það eigi að vera störfum eða ekki þegar til þessa kemur, ef það er ákveðið að þingið þurfi að vera saman í kringum þessa daga sem atkvæðagreiðslan er þá bara verður það þannig. Það mun alla vega ekki, eins og ég hef oft sagt, standa á mér að taka þátt í þessari vinnu hvort sem það er eingöngu á vettvangi utanríkismálanefndar eða í þinginu hvort sem það verður sumarþing eða ekki.