þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég vildi að ég hefði byrjað, þegar hv. þingmaður var í andsvörum og í ræðu hans, að telja hversu oft hann nefndi sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna. Þetta er búið að vera skemmtilegt, að vísa í það. Það væri kannski bara fínt ef þingmaðurinn myndi aðeins fara betur í það með okkur hvað það þýðir og hvað stendur þar.
Aftur vitna ég í það sem kemur fram í skýrslu Alþjóðastofnunar Háskólans sem unnin var í kjölfar viðræðnanna, með leyfi forseta: Embættismönnum ESB var bent á að „sjávarútvegsstefnan væri ekki eins stíf og hún væri talin og [að] klæðskerasniðnar lausnir séu algengar innan ESB“.
Það er nú allt sem ég hef um það að segja í bili.