þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir kennsluna um sjávarútvegsstefnuna. Ég get kannski nefnt nokkur dæmi úr sjávarútvegsstefnunni. Þar er talað um að það þurfi að vernda fisk, þannig að það eigi veiða eftir kvóta eða vinna eftir veiðiráðgjöf vísindafólks og annað slíkt. Hljómar kunnuglega, ekki satt? Það er það sem sjávarútvegsstefnan hjá Evrópusambandinu gengur út á, hún hljómar bara að mjög mörgu leyti eins og sú sjávarútvegsstefna sem við vinnum eftir. Þannig að kannski er þetta bara ljómandi fín sjávarútvegsstefna, ég skal ekkert segja til um það.
Það var auðvitað ríkisstjórnin sem tók við af Jóhönnustjórninni sem hætti í samningaviðræðum. Við höfum farið í gegnum það, allar bréfaskriftirnar og allt það sem þar fór fram. Ég get frætt hv. þingmann um það, af því að ég var í einum af þessum vinnuhópum sem voru að vinna ýmis mál, að ég átti nú að vera á fundi í utanríkisráðuneytinu daginn sem stjórnarskiptin urðu og fulltrúar ESB sem þar voru mættir voru sendir heim. Þannig að viðræðunum var ekki lokið fyrr en a.m.k. eftir að sú ríkisstjórn tók við. (Gripið fram í.)