157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:32]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Við höfum svolítið verið að tala um upplýsingagjöf hérna í kvöld, og reyndar svolítið í gær líka, og hún er mér mjög ofarlega í huga, sérstaklega núna þar sem málið fer inn í utanríkismálanefnd. Það er tvennt sem ég hef nefnt til: Annars vegar hefur nú þegar verið óskað eftir því að forsætisráðherra komi og útskýri orð sín sem féllu 16. febrúar varðandi það að það væri um eitthvað að semja, hún hefði átt orðastað við háttsetta embættismenn. Við höfum talið mjög mikilvægt að eiga opið og milliliðalaust samtal við forsætisráðherra um þetta; það komu fram beiðnir um fundargerðir og annað. Þetta er auðvitað partur af því að halda þessu ferli opnu, lýðræðislegu og öflugu til að fólk geti kynnt sér alla anga málsins í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Er ekki hv. þingmaður sammála mér í þessari vegferð okkar? Þetta er einmitt kjarni málsins, að við vitum hvaðan við erum að koma þegar svona mikilvægt mál er undir.