þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurninguna. Jú, ég held að það sé einmitt hluti, og mjög mikilvægur hluti, af því sem ég nefndi hér í bæði ræðu og andsvörum, að vinna utanríkismálanefndar verði mjög vönduð í þessu máli. Það þýðir að við verðum að fá þær upplýsingar sem nefndin óskar eftir. Hv. þingmaður hefur einmitt óskað eftir viðbrögðum forsætisráðherra við þessu. Það kom fram í fundarboði fyrir fund utanríkismálanefndar á fimmtudaginn að utanríkisráðherra kæmi fyrir nefndina. Ég geri ráð fyrir því að bara strax og þetta mál kemur til nefndarinnar hefjist mikil vinna þar sem kalla þarf fyrir sérfræðinga, það þarf að kalla fyrir fólkið úr ráðuneytunum. Við erum að fá ráðherrana sem hafa verið að tala um þetta fyrir nefndinni. Ég, eins og hv. þingmaður veit, studdi þá hugmynd og þá tillögu þingmannsins að fá forsætisráðherra til að koma og ræða við okkur.