þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að eiga hér orðastað við mig. Ég held að við séum á svipuðum stað hvað þetta varðar. Þess vegna vil ég nefna hér í seinna andsvari mínu að hæstv. utanríkisráðherra var líka inntur eftir svipuðum svörum eftir að þingsályktunartillagan var kynnt en þar sagði hún eitthvað á þessa leið, að samtöl hennar eða samskipti gætu mögulega skaðað samningsgrundvöllinn sem við hefðum. Ég hjó aðeins eftir þessu og það er einmitt þetta sem ég er að tala um, virðulegi forseti. Ég ætla ekki að vera með tortryggni fyrir fram, höfum það alveg á hreinu. En fólk sem er að fara að taka ákvörðun um hvort við ætlum að halda áfram aðlögunarviðræðum, ég get alveg ímyndað mér að fólk myndi til að mynda vilja vita þetta frá hæstv. utanríkisráðherra. Einnig langar mig að spyrja hv. þingmann hvort það sé ekki alveg skýrt að það verði vel tekið í beiðnir allra í nefndinni, það kann að koma frá minni hluta eða meiri hluta, (Forseti hringir.) um að við fáum sérfræðinga frá Evrópusambandinu til okkar til að ræða málin.