157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:38]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni kærlega fyrir hans góðu ræðu. Það er náttúrlega gott og gilt að ég og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson tökumst á um kosti og galla aðildar, eins og við vorum að gera hérna áðan, en ræða hv. þingmanns kjarnaði mjög vel um hvað þetta mál raunverulega snýst, sem er að við erum að leggja það í dóm þjóðarinnar hvort við eigum að halda áfram með þessar aðildarviðræður eða ekki, komast að einhverri niðurstöðu og síðan leggja endilega í dóm þjóðarinnar aftur hvort við gerumst aðildarríki í Evrópusambandinu eða ekki.

Mig langar að vitna í, eins og ég hef gert áður, núverandi stækkunarstjóra Evrópusambandsins, Mörtu Kos sem segir, með leyfi forseta:

„Samningar um aðild að Evrópusambandinu eru sértækir fyrir hvert og eitt ríki og við tökum mið af þeim raunveruleika sem umsóknarríki búa við.“

Svipaða tilvitnun má finna í viðtali við NRK. Ég vil spyrja hv. þingmann: Hefur hann einhverjar skýringar á því að þingmenn minni hlutans komi hérna upp trekk í trekk með fullyrðingar um að það sé ekkert um að semja? Tala reyndar (Forseti hringir.) um samningsmarkmið og gera kröfu um samningsmarkmið, ég skil ekki af hverju ef það er ekkert um að semja? (Forseti hringir.) Hefur hv. þingmaður einhverjar skýringar á þessu?