157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:41]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég hjó líka eftir þessu í ræðu hv. þingmanns. Ég veit ekki alveg hvað þingmanninum gekk til en hann var að halda hér innblásna ræðu, innblásinn af miklu þjóðarstolti, og síðan einhvern veginn bætti hann því við að Evrópusambandið ætlaði að stofna her og þá gætu íslensk börn framtíðarinnar hugsanlega þurft að ganga í þann her. Ég held að þingmaðurinn hljóti einhvern veginn að hafa aðeins misst flugið í sinni innblásnu ræðu og hafi alls ekki ætlað að fara út í þetta því að ég ætla honum ekki að vera með hræðsluáróður. Auðvitað er þetta orð sem hefur oft komið upp í hugann hér í kvöld þegar menn eru að tala um að það sé ekkert um að semja og ýmislegt í þá áttina, að það sé verið að hræða fólk inn í þetta. Ég er alla vega ekki að því og ég hef ekki heyrt stjórnarliða tala þannig. Við ætlum að treysta þjóðinni fyrir því að svara spurningunni: Ætlum við að halda áfram samtalinu og samningum við Evrópusambandið eða ætlum við ekki að gera það? (Forseti hringir.) Þjóðin mun taka þá ákvörðun.