Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá innviðaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 795, um mannauðsmál, frá Ingibjörgu Davíðsdóttur, og á þskj. 784, um hagræðingu í ríkisrekstri, frá Árna Helgasyni. Þá hafa borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 787, um hagræðingu í ríkisrekstri, frá Árna Helgasyni, á þskj. 798, um mannauðsmál, frá Ingibjörgu Davíðsdóttur, og á þskj. 819, um vörugjöld af fólksbifreiðum, frá Bergþóri Ólasyni. Einnig hafa borist bréf frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 782, um hagræðingu í ríkisrekstri, frá Árna Helgasyni, og á þskj. 793, um mannauðsmál, frá Ingibjörgu Davíðsdóttur. Að lokum hafa borist bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 771, um skýrslur um matvælabirgðir og mælaborð um fæðuöryggi, og á þskj. 800, um vinnu við breytingar á búvörulögum, báðar frá Ingibjörgu Davíðsdóttur, og á þskj. 781, um hagræðingu í ríkisrekstri, frá Árna Helgasyni.