markmið með þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna.
Virðulegi forseti. Nú hefur ríkisstjórnin sett ESB-aðild á dagskrá með mjög afgerandi hætti en stærstu spurningunni er algerlega ósvarað: Á hvaða forsendum ætlar ríkisstjórnin eiginlega að fara af stað? Það sem skiptir máli áður en Alþingi tekur afstöðu og áður en þjóðin er kölluð að borðinu er að vita hvert ber að stefna, hvaða markmið á að setja, hvaða hagsmuni á að verja og hvar ríkisstjórnin ætli að draga skýra línu. Það er ekki nóg að segja að þjóðin fái að kjósa. Þjóðin á líka rétt á því að vita hvað hún raunverulega á að kjósa um. Þegar Alþingi fjallaði um þetta mál árið 2009 voru forsendur málsins lagðar fram með mun skýrari hætti en nú er gert. Þá var farið ítarlega yfir samningsmarkmið, fyrirvara, skipulag viðræðna og samráð við hagsmunaaðila. Þá var ekki beðið um blint traust á ríkisstjórnina, annað en gert er núna þar sem ekki er einu sinni hægt að segja okkur hér á Alþingi né þjóðinni hver skilyrðin eigi að vera. Hvar eru rauðu línurnar í sjávarútvegsmálum, landbúnaðarmálum, orkumálum eða öðrum málum sem skipta Ísland grundvallarmáli?
Þess vegna spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Hvers vegna biður ríkisstjórnin þing og þjóð um opið umboð til viðræðna án þess að leggja fram skýr skilyrði? Hyggst forsætisráðherra gera grein fyrir því áður en gengið verður til þjóðaratkvæðagreiðslu nákvæmlega á hvaða grunni ríkisstjórnin ætlar sér að hefja þessa vegferð?