markmið með þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er gott að minnast þess að á sínum tíma, þegar við fórum síðast í þetta ferli, var hér til umræðu þingsályktunartillaga þar sem átti ekki að spyrja þjóðina hvort það ætti að hefja aðildarviðræður heldur snerist sú þingsályktunartillaga um að hefja slíkar aðildarviðræður. Mig minnir reyndar að aðrir flokkar hafi lagt m.a. til, það færi betur á því vegna þess að þetta væri stórt mál, að farið væri í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er það sem er verið að gera núna. Ég hef sagt það mjög skýrt að það skiptir máli á hvaða forsendum við förum inn í þessar aðildarviðræður. Það kemur líka fram í greinargerð með þingsályktunartillögunni hver meginatriðin eru, hvaða prinsippum er fylgt, líkt og þegar ráðist var í þetta ferli á sínum tíma. Auðvitað er þetta ekki einfalt mál en í grunninn er þetta ekki svo flókið. Við höfum talað um óskorað forræði yfir auðlindum landsins og ég hygg að flestir Íslendingar séu sammála um það. Ég held að það væri hollt fyrir þessa umræðu að við myndum einmitt einblína á hvað við höfum í rauninni mikilla sameiginlegra hagsmuna að gæta þegar kemur að því að tryggja forræði okkar yfir auðlindum þjóðarinnar. Og það þarf enginn að efast um það að það er full samstaða í þessari ríkisstjórn og í stjórnarmeirihlutanum um að treysta forræði okkar yfir auðlindum okkar, yfir sjávarútvegi, orkuauðlindum og auðvitað þarf líka að hafa þar í huga yfirráð á jörðum og landi og þess háttar. Við höfum alveg verið skýr hvar línan liggur í sandinum. Síðan þarf að fara í samninga, rétt eins og formenn sumra flokka sem hér sitja í þessum sal nefndu á sínum tíma 2009, að það væri víst hægt að fá slíkar undanþágur og slík samningsákvæði væru gríðarlega mikilvæg. Þetta mun liggja fyrir þegar þessar viðræður verða hafnar en prinsippin, rauðu línurnar, eru algerlega skýr í okkar huga.