157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

markmið með þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna.

[15:09]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ef rauðu línurnar og skilyrðin eru svona skýr, af hverju í ósköpunum vill þá ekki ríkisstjórnin og treystir ríkisstjórnin sér ekki til að upplýsa þjóðina um það? Forsætisráðherra er margbúin að segja, bæði á blaðamannafundi sem og hér úr ræðustóli Alþingis, að enginn Íslendingur þurfi að verða sérfræðingur í Evrópusambandinu áður en gengið verður til kosninga. Með öðrum orðum er forsætisráðherra að segja að það þurfi ekki að upplýsa þjóðina og að hér þurfi fólk ekki að fá nægar upplýsingar. Ég undra mig á því af hverju ríkisstjórnin ætlar að grípa til svo drastískra óafturkræfra aðgerða sem innganga í Evrópusambandið er þegar gefur á bátinn í alþjóðasamvinnu, eins og ríkisstjórnin hefur margoft tekið fram. Af hverju stendur ríkisstjórnin ekki í lappirnar eins og fyrri ríkisstjórnir hafa gert? Það gefur alltaf á bátinn, það eru alltaf vandamál. Það koma alltaf upp erfið mál sem þarf að kljást við. Hæstv. forsætisráðherra sagði fyrir kosningar að hún vildi ekki standa frammi fyrir niðurstöðu þar sem niðurstaðan væri 52% gegn 48%. Hún sagði að slík niðurstaða væri of veik og hún vildi ekki kljúfa þjóðina í tvennt og hefur nefnt tölurnar 70% og 30%. Nú hefur utanríkisráðherra sagt að einfaldur meiri hluti dugi. (Forseti hringir.) Hvoru á þjóðin að treysta, orðum forsætisráðherra eða orðum utanríkisráðherra? Svar óskast.