157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

aðildarviðræður og aðlögun að ESB.

[15:15]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Mér þykir dapurlegt að verða vitni að þeim málflutningi sem fer hér fram, þar sem því er ítrekað haldið fram að þjóðin viti ekki sínu viti, að þjóðin láti blekkjast, að þjóðin geti ekki aflað sér upplýsinga, að það sé hægt að hafa vit fyrir fólki og að fólk geti ekki og sé ekki fært til að taka sjálft ákvörðun. Mér finnst þetta ótrúlegur málflutningur. Leyfum okkur hér inni að vera ósammála en þjóðin veit sínu viti. Hér er verið að tala um að það sé verið að fela hitt og þetta. Hvað hefur Miðflokkurinn að fela í þessu máli? Hvað hefur Miðflokkurinn að fela frá þjóðinni í umræðu um kosti við Evrópusambandið? Af hverju má ekki tala um samkeppnismál? Af hverju má ekki tala um tollamál? Af hverju má ekki tala um myntbandalag? Er þetta kannski eitthvað sem Miðflokkurinn vill ekki að þjóðin fái að taka þátt í umræðu um? Já, auðvitað felast einhverjar breytingar í því að Ísland gangi í Evrópusambandið, alveg eins og þegar Ísland gekk í EES á sínum tíma. Ég veit ekki betur en að við séum reglulega hér inni að samþykkja alls konar aðlögun að EES-samningnum, sem í gegnum tíðina hefur verið Íslandi til bóta. Ef það er verið að tala um að allar aðlaganir í framtíðinni muni fela í sér einhverja neikvæða þróun þá veit ég ekki hvert við erum komin í íslenskri pólitík. Þessi umræða er farin að snúast um eitthvað allt annað en hún átti að snúast um.

Við eigum að treysta þjóðinni. Hún veit sínu viti. Hún lætur ekki blekkjast og hún er fullfær um að taka eigin ákvarðanir í þessu máli. Tökum þessa umræðu á málefnalegum grundvelli. Það liggur alveg fyrir að margt mun breytast hér við inngöngu í Evrópusambandið en við erum ekki að greiða atkvæði um það. Við erum að greiða atkvæði um það hvort við hefjum slíkar viðræður. Ef fólk vill síðan ekki fá lokasamninginn og klára hann þá verður bakkað út úr því ferli. Hér er stöðugt, talandi um blekkingar, verið að halda því fram að við séum að bakka með Ísland inn í Evrópusambandið án þess að þjóðin viti af því. Það er rangt, það er kolrangt, frú forseti, og það skiptir máli að slíkur málflutningur fái ekki að lifa. Það er þjóðin sem fær fyrsta orðið og hún fær líka lokaorðið í þessu máli.