157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

staða mála að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu.

[15:20]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegi forseti. Ég ætla að freista þess að spyrja hæstv. ráðherra um þessa þingsályktunartillögu um aðildarviðræður að ESB í þeirri von að hæstv. ráðherra hafi meira gaman af umræðunni en hæstv. forsætisráðherra, sem sagði þó í ræðu hér rétt á undan að við ættum að fagna umræðunni eða að taka umræðuna, eins og gjarnan er sagt. Tökum umræðuna, sagði hún án þess þó að hafa litið við hér í þingsal þá daga þegar þessi umræða hefur átt sér stað. Ég vil nefna það, virðulegur forseti, við hæstv. mennta- og barnamálaráðherra að ég er framarlega á mælendaskrá í umræðunni seinna í dag og ég mun leggja mig í líma við það, hafi hæstv. ráðherra áhuga á að koma inn í umræðuna, að liðka til þannig að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra geti komið framarlega á dagskrá til að ræða þetta mál. Hæstv. ráðherra er formaður eins stjórnarflokkanna og hefur sem slíkur lýst því yfir að flokkur hennar leggist gegn aðild að Evrópusambandinu. Það liggur alveg skýrt fyrir. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hvernig hún sjái fyrir sér framhaldið. Verði það raunin að 50% eða 51% þjóðarinnar allrar muni greiða þessari þingsályktunartillögu, spurningunni eins og hún er lögð fram, atkvæði sitt, þ.e. ef 51% þjóðarinnar myndi segja já, hvað sér hæstv. ráðherra fyrir sér að fram fari þá? Telur hún að þá hefjist einhvers konar aðlögun hér á Íslandi eða telur hún að þetta séu bara hefðbundnar viðræður yfir kaffiborði eða kaffibrauði í Brussel? Í því sambandi vil ég spyrja, af því að hér kom fram undir fundarstjórn forseta rétt á undan ágæt ábending um að hæstv. ráðherrar sjái ekki fram úr augunum að svara einföldustu fyrirspurnum sem hv. þingmenn leggja fyrir þá og óska eftir fresti trekk í trekk: Sér hæstv. ráðherra fyrir sér að ráðuneyti hennar og önnur í Stjórnarráðinu megni það (Forseti hringir.) að stunda þessar viðræður eins og gert væri ráð fyrir? Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér framhaldið eftir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu?