157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

staða mála að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu.

[15:22]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir fyrirspurnina. Það er rétt, það hefur verið stefna Flokks fólksins frá öndverðu, frá því að við urðum til, að við séum ekki hlynnt aðild að Evrópusambandinu. Það liggur fyrir. En á sama tíma höfum við ævinlega sagt að þjóðarviljinn hefur í rauninni ekki fengið að koma að mjög stórum og mikilvægum málum sem varða okkur til framtíðar, samanber Schengen, EES-samninginn, NATO, EFTA, allt þetta. Ég hef alltaf sagt að mér finnist vera vöntun á beinu lýðræði. Ég vil sjá meiri aðkomu samfélagsins okkar, þjóðarinnar okkar, að svona mikilvægum málum. Hvað gerist ef þjóðin segir já, ef meiri hluti þjóðarinnar segir: Já, við erum tilbúin að fara í þessar aðildarviðræður? Þá virði ég það. Þó svo að mitt atkvæði sé eitt atkvæði þá er ég ekki alfa og omega hvað það varðar. Ég myndi aldrei nokkurn tímann vera það stalínísk að einu eða neinu leyti að ætla að reyna að berjast gegn því að þjóðin okkar fengi að eiga síðasta orðið. Í lokin munum við vonandi vera með einhvern samning, eitthvað verðum við með í fanginu sem við leggjum þá aftur fyrir þjóðarviljann. Hvernig líst ykkur, kæra þjóð, á þetta? Viljið þið að við göngum í Evrópusambandið? En eitt skal alveg vera víst og það er algerlega á hreinu og það er ekkert falið eins eða neins staðar, hvorki hjá hæstv. forsætisráðherra eða hæstv. utanríkisráðherra, ríkisstjórninni í heild né mér: Við erum ekki að fara að gera eitt eða neitt sem skaðar samfélagið okkar í heild sinni, aldrei. Það verða skilyrðislaus yfirráð yfir okkar auðlindum frá A til Ö. Að öðrum kosti verður aldrei um neina inngöngu í Evrópusambandið að ræða.