staða mála að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu.
Virðulegur forseti. Það er gott að heyra að hæstv. ráðherra er ekki tilbúin til að afsala sér fullveldinu á auðlindum okkar og þess vegna hlýt ég að spyrja í framhaldinu: Mun hún berjast fyrir því eða leggja sínar árar á það að fá t.d. svar frá Evrópusambandinu, áður en þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram, um það hvort ekki sé hægt að fara í þessar viðræður án þess að opna t.d. kaflann um sjávarútvegsmál? Ef hæstv. ráðherra er sammála mér um það að þar sé ekkert um að semja, þarf þá að opna kaflann um sjávarútvegsmálin? Þetta finnst mér skipta miklu máli en hæstv. ráðherra segist vilja hlusta á þjóðina. Það er síðan önnur spurning sem hæstv. forsætisráðherra svaraði ekki þótt hún væri spurð um það ítrekað hér fyrr í dag. Kannski getur hæstv. mennta- og barnamálaráðherra gert það. Hvaða afstöðu hefur hún til þess hlutfalls sem annars vegar tekur þátt í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu og hins vegar þess hlutfalls sem þarf til þess að knýja fram þessar aðildarviðræður? Er hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) sátt við það ef kannski 40% þjóðarinnar, með teknu tilliti til þátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslu, vilji kíkja í pakkann eins og svo er kallað? (Forseti hringir.) Er það ásættanlegt að mati hæstv. mennta- og barnamálaráðherra?