staða mála að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurnina, en ég held að hún hafi snúið þessu eitthvað við því að auðvitað er ég alls ekki sátt við það ef 40% vilja kíkja í pakkann. Ég er alls ekki sátt við það. Það verður að vera meiri hluti, auðvitað, til þess að við kíkjum eitt eða neitt. En það sem hv. þingmaður er að tala um, hvort einhver ástæða sé til að opna sjávarútvegskaflann, einhver ástæða til að opna helstu hagsmunamál okkar og stærstu hagsmunamál okkar, þá hefur það ítrekað komið fram að það verður í rauninni það fyrsta og verður í forgangi að kíkja á það sem verður algerlega hægt að strika út þá og þegar í fyrstu atrennu ef ekki er hægt að ná skýrum línum um það. (Gripið fram í.)Svo segi ég bara líka að það er ástæða til að líta í kringum sig. Þess vegna verðum við að vera með fortakslausa kröfu um yfirráð auðlindanna vegna þess að við höfum séð það að aðlögunarferli ýmissa þjóða, sem hafa einmitt gengið til liðs við Evrópusambandið, að aðlögun og frestur sem þær hafa fengið til þess í rauninni að sambandið tæki yfir og aðlagi auðlindir þeirra, eins og Írar núna t.d. — við viljum ekki vera á þeim stað. Við viljum aldrei þurfa að sitja uppi með það að við séum búin að afsala okkur einhverju inn í framtíðina, að 20 árum seinna séum við búin að missa yfirráð yfir sjávarauðlindinni, landbúnaðinum okkar, orkunni okkar eða slíku. Það er ekki í boði og það verður bara að vera skýrt og við (Forseti hringir.) treystum þjóðinni 100% til þess að taka afstöðu með því.