svör ráðherra við fyrirspurnum.
Frú forseti. Eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir benti á hér áðan þá vantar mikið upp á að hæstv. ráðherrar svari skriflegum fyrirspurnum. En vandinn er hins vegar orðinn enn stærri en svo. Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra, eins og hér fóru fram, sem eiga að vera helsta ráð þingsins til að halda ráðherrum við efnið, fara að óbreyttu að vera nánast óþarfar ef ráðherrar þurfa aldrei að svara þeim spurningum sem til þeirra er beint. Þeir geta talað fram hjá málinu, talað um eitthvað allt annað, snúið út úr og komist upp með það án athugasemda hæstv. forseta, að svara ekki spurningunum. Þetta er mikið alvörumál en sérstaklega þegar um er að ræða mál sem varðar framtíð landsins og fullveldi og áformaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Að hæstv. ráðherrar skuli ekki einu sinni svara spurningum um til hvers er ætlast af þjóðinni í því samhengi, hvað hún eigi að greiða atkvæði um. (Forseti hringir.) Þeir þykjast annaðhvort ekki vita það eða sleppa því einfaldlega að svara.