Fangelsismál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir að gera fangelsismál að sérstöku umræðuefni í dag. Ég vil strax í upphafi greina frá því að undirbúningur byggingar nýs fangelsis að Stóra-Hrauni er hafinn. Útboð vegna jarðvegsvinnu mun hefjast á næstu vikum og framkvæmdin svo í kjölfarið. Öryggisfangelsið á Stóra-Hrauni verður með samtals 128 afplánunarrými. Þar verður hægt að skilja fanga betur að en nú er eftir þörfum og með því tryggja öryggi fangavarða betur en í dag, auk þess sem betur verður hægt að sinna kennslu og almennri endurhæfingu fanga. Þetta er þó ekki það eina sem er að gerast í húsnæðismálum fangelsa því að við ætlum að stækka opna fangelsið að Sogni, m.a. í því skyni að fjölga afplánunarrýmum fyrir konur, og ég bind vonir við að framkvæmdir þar hefjist með vorinu.
Stóra-Hraun mun auðvitað hafa mikil áhrif á stöðu fangelsismála í landinu en við vitum að Stóra-Hraun verður ekki tekið í notkun fyrr en að einhverjum tíma liðnum, jafnvel eftir einhver ár. Þangað til þurfum við að grípa til annarra en alvöruaðgerða. Staðan á Íslandi í dag er þannig að fangelsin okkar eru full af erlendum glæpamönnum, mönnum sem hafa oft lítil eða engin tengsl við landið. Þessir glæpamenn, ætla ég að leyfa mér að segja, eru ekki velkomnir hér á landi og munu ekki verða það að afplánun lokinni. Ég hef þess vegna kynnt frumvarp um brottvísanir erlendra fanga og það hefur verið afgreitt úr ríkisstjórn og úr stjórnarflokkunum þremur. Skilaboðin eru skýr: Alvarleg afbrot hér á landi hafa raunverulegar og langvarandi afleiðingar. Þegar ákvörðun um brottvísun liggur fyrir og afplánun lýkur verður þessum brotamönnum, sem eru með lítil eða engin tengsl við landið, vísað strax úr landi og þeir sæta endurkomubanni til Íslands og eftir atvikum alls Schengen-svæðisins. Þannig tryggjum við að fangelsisrými nýtist þar sem þeirra er raunverulega þörf og að brottvísanir séu ekki aðeins orð á blaði heldur raunveruleg aðgerð.
Ég hef líka verið að endurskoða verkferla varðandi flutning dæmdra manna á milli ríkja og afplánun fanga í heimaríki á grundvelli alþjóðlegra samninga. Markmið þessarar endurskoðunar er bæði að gera þetta ferli raunhæft og skilvirkara en nú er. Dómsmálaráðuneytið hefur nú þegar sent erlendum stjórnvöldum beiðni um að taka við föngum. Þetta hefur ekki verið gert í meira en áratug þannig að ríkisstjórnin er að taka stór og þýðingarmikil skref og við erum og ætlum okkur að létta á kerfinu.
Ég get þó ekki rætt fangelsismál án þess að nefna frumvarp mitt um brottfararstöð sem ég geri ráð fyrir að verði afgreitt úr allsherjarnefnd á allra næstu dögum. Með samþykkt þess frumvarps munum við geta létt á fangelsunum og vistað þá sem vísa á úr landi í viðeigandi úrræði, sem er ekki fangelsi en þar er fólk vistað í dag. Brottfararstöð er í því samhengi mikilvægt umbótamál sem Alþingi þarf að klára. Það mun létta á fangelsunum og tryggja viðeigandi úrræði fyrir það fólk sem er að fara úr landi.
Stjórnvöld þurfa líka að taka það alvarlega að betra þá einstaklinga sem koma aftur út í samfélagið. Þar þarf að huga að þjónustu og þar þarf að huga að aðbúnaði fanga sem sæta afplánun og veita þeim nauðsynlegan stuðning. Öðruvísi getum við ekki stuðlað að farsælli endurkomu út í samfélagið og getum ekki stuðlað að því að fólk eigi raunveruleg tækifæri til þátttöku að nýju. Í því sambandi má nefna að í fangelsiskerfinu er þó í dag boðið upp á meðferðarúrræði og það er starfrækt sérstakt geðheilsuteymi en hér þarf svo sannarlega að gera betur. Aðstaðan til þess verður betri á Stóra-Hrauni og aðstaðan er sjálfstætt svar við því að gera betur hvað varðar endurhæfingu. Markmiðið er auðvitað að fangar komi út reiðubúnir til að takast á við samfélagið að nýju og verkefni lífsins. Þetta á við um þá sem eru Íslendingar. Þetta á líka við um þá sem eru af erlendum uppruna en hafa tengsl við landið og eru búsettir hér. Restin verður send úr landi strax að lokinni afplánun, umsvifalaust.
Nýlega var svo undirritaður samstarfssamningur milli Fangelsismálastofnunar og starfsþróunarseturs lögreglu til fimm ára. Það varðar grunnnám fangavarða og endurmenntun, bóklega og verklega kennslu. Þetta nám hefur reynst vel og hér ætlum við líka að gera betur.
Ég hvet þingmenn til að halda áfram umræðu um fangelsismál. Þau skipta samfélagið máli og ég þakka fyrir umræðuna.