157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

Fangelsismál.

[15:58]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það sem mér þykir einkenna þessa umræðu oft um fangelsismál er sú sýn eingöngu að það þurfi að fjölga fangelsisrýmum, stækka fangelsin, smíða fleiri fangelsi. Þannig fellur þessi málaflokkur svolítið í farveg kerfisvæðingarinnar, stækkar báknið enn frekar. Mjög sjaldan er spurt af hverju menn sitja í fangelsi. Af hverju eru 80% þeirra sem sitja t.d. í gæsluvarðhaldi þessa dagana — 80% þeirra eru útlendingar. Af hverju sitja þeir í fangelsi? Ég get ímyndað mér að stór hluti þeirra sé þarna vegna fíkniefnalöggjafarinnar. Þá fyndist mér það a.m.k. einnar messu virði að menn ræddu kannski hugmynd um hvort það sé eitthvað í löggjöfinni almennt sem þurfi að laga, ekki bara fíkniefnalöggjöfina, en það er þó sérstaklega hún sem hefur þyngst verulega sem hefur valdið þessu mikla álagi á fangelsin.

Ég rek hins vegar, virðulegur forseti, augun í það, eða var bent á það að í samráðsgáttinni liggur fyrir frumvarp frá dómsmálaráðherra eða drög að frumvarpi um tímabundna heimild til að veita erlendum föngum, sem hefur verið ákveðið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn af einum þriðja afplánunartímans en ekki helming tímans eins og á við í dag. Eftir sætu íslenskir fangar sem myndu þurfa að afplána helminginn en útlendum föngum á að veita reynslulausn eftir skemmri tíma. Ég geri töluverðan fyrirvara við þessi áform, a.m.k. á meðan ég hef ekki fengið skýringar á því hvernig það gæti samrýmst stjórnarskrá eða hvernig það gæti samrýmst afstöðu til íslenskra fanga að ætla að sýna erlendum föngum þessa linkind og um leið búa kannski til segul fyrir (Forseti hringir.) erlenda fíkniefnasmyglara hingað.