157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

Fangelsismál.

[16:05]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir að hefja umræðuna og ráðherra fyrir að taka þátt í henni. Horfa þarf heildstætt á þá einstaklinga sem koma inn í refsivörslukerfið; frá greiningum og frumkvæðisvinnu löggæslu og tollayfirvalda yfir í handtökur, rannsóknir, ákærur, dóma, fangelsun eða aðra refsingu og endurhæfingu. Ef við hugum ekki að öllum þáttum kerfisins þá fara að koma fram brestir.

Virðulegi forseti. Afsakaðu myndlíkinguna en ef við hugsum þetta eins og færiband þá færum við seint auka hraðann á einu verkefni á færibandinu því að þá færu afurðir að detta af bandinu annars staðar með tilheyrandi tjóni. Ef við hugsum ekki um einstaklinginn og allt hans ferli í kerfinu munum við ekki ná árangri. Það þýðir ekkert að auka hraðann á einstökum verkefnum því að það veldur vandræðum á öðrum stöðum. Markmið um að byggja nýtt fangelsi, fjölga lögreglumönnum, efla löggæslu og dómstóla eru góð og gild en horfa þarf á allt kerfið.

Virðulegi forseti. Við þurfum að rjúfa vítahringinn sem allt of margir eru í. Forvarnir og aðrar mótvægisaðgerðir, fræðsla og endurhæfing eru atriðin sem við eigum að horfa til. Annars verðum við alltaf á eftir og ungt fólk mun einfaldlega halda áfram að deyja.

Virðulegi forseti. Ég treysti ráðherra og ríkisstjórninni allri til að vinna saman að úrbótum því að þörfin á þverfaglegum lausnum er brýn.