Fangelsismál.
Frú forseti. Ég þakka þessa umræðu um þessi mikilvægu mál. Það er öllum ljóst að þessi málaflokkur er alls ekki í nógu góðum málum hjá okkur og hefur ekki verið lengi. Það er auðvitað þannig þegar gefið er í við að rannsaka mál og svo að dæma, þá þarf auðvitað að fylgja þessum málaflokki eftir, þ.e. fangelsismálunum. Þess vegna var mjög mikilvægt þegar fyrrverandi hæstv. dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, ákvað að ráðast í byggingu nýs fangelsis sem fengið hefur nafnið Stóra-Hraun. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í það hver tímamörkin séu núna á því fangelsi. Ég sé einhvers staðar í gögnum mínum, ég man ekki hvort það var í fjármálaáætlun eða fjárlögunum, fjármálaáætlun líklega, að talað er um að hægt verði að vígja það fangelsi þá en eitthvað segir mér að kannski sé sú dagsetning ekki alveg að ganga eftir núna.
Virðulegur forseti. Mig langar líka að vekja máls á þessari eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar með Fangelsismálastofnun sem við höfum fjallað um í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Þar segir á bls. 10 að mat Fangelsismálastofnunar á manneklu í febrúar 2025 hafi verið 33 stöðugildi. Það vantaði 18 fangaverði, tvo sérfræðinga á mannauðssviði, þrjá á fullnustusviði og tíu á meðferðarsviði. Þetta eru um 500 milljónir sem þarna eru undir. Í fjárlögum þessa árs var ekki fjallað um það. Það var vissulega verið að setja aukið fjármagn í byggingu nýs fangelsis en alla vega ekkert í samræmi við það sem þarna er metið. Ég spyr jafnframt hæstv. ráðherra hvernig mönnun líði hjá Fangelsismálastofnun: Er enn þessi mikli skortur sem Fangelsismálastofnun mat á síðasta ári eða er árið í ár eitthvað betra?
Það var meira sem ég ætlaði að spyrja um, virðulegur forseti, en tíminn er útrunninn.