157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

Fangelsismál.

[16:12]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Tilgangur refsinga er margþættur. Í fyrsta lagi að kenna viðkomandi brotamanni lexíu, þ.e. að hann taki ekki upp á því að halda áfram í afbrotum. Síðan að kenna öðrum úti í samfélaginu að fremji maður slík afbrot þá hljóti maður refsingu. Þetta eru svona varnaðaráhrif refsinga, síðan er tilgangurinn auðvitað líka betrun sem þessi umræða kannski fjallar mikið um, að betra þá sem í fangelsi fara, gera þá að betri mönnum og að þeir komi út úr sinni refsivist betri menn og geti þá betur fótað sig í samfélaginu. En refsing er vond, frú forseti, hún er vond og hún á að vera vond. Nú er svo komið að stór hluti afbrotamanna og vistmanna í fangelsiskerfinu er af erlendu bergi brotinn og 80% þeirra sem sæta gæsluvarðhaldi eru erlendir og meira að segja Bubbi Morthens hefur hætt að spila fyrir fangana, kannski vegna þess að þeir geta ekki lengur tekið undir slagarana hjá honum. Þetta er svona merki um hvert þetta hefur verið að stefna. Hver er lausnin á þessu, frú forseti? Lausnin er auðvitað efld landamæragæsla og að loka hælisleitendamóttöku hér á landi á meðan undið er ofan af þessu. Þetta er að sprengja upp kerfið, þar á meðal fangelsiskerfið, frú forseti. Það á að beita brottvísun af miklu meiri hörku en hingað til hefur verið gert.

Ég ætla að nefna hérna í lokin nám fangavarða samkvæmt reglugerð um það nám, sem er nú bara fimm greinar, og spyrja hæstv. ráðherra að því hvort það standi til að laga þetta nám eitthvað. Í erfiðum heimi í dag er þetta orðið mjög krefjandi starf. (Forseti hringir.) Stendur til að endurskoða nám fangavarða og gera það nútímalegra?