Fangelsismál.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir að hefja þessa umræðu. Ég þakka sömuleiðis hæstv. ráðherra fyrir upplýsandi svör. Við erum hér með málaflokk sem hefur því miður farið stækkandi. Það er rétt að skoða allar leiðir, hvernig við getum þá minnkað þörfina fyrir fangelsi og ég treysti hæstv. ráðherra til að gera það. Hennar áherslur í starfi eru einmitt brottvísun og endurkomubann og ég held að það sé einn mikilvægasti þátturinn í þessu þegar það liggur fyrir að meiri hluti fanga í íslenskum fangelsum eru erlendir fangar. Þetta ætti auðvitað að vera fyrsta verk. Síðan er rétt að ræða það þegar menn eru að tala um að vippa upp þessu fangelsi á Stóra-Hrauni, að hér er um gríðarlega kostnaðarsama framkvæmd að ræða sem ég tel rétt að staldra við og vita hvort ekki sé hægt að ná þessum kostnaði niður að einhverju marki, sérstaklega í ljósi þess að mannvirkið verður ekki tekið í notkun fyrr en að einhverjum árum liðnum þannig að sá bráðavandi sem nú liggur fyrir stendur enn þá eftir eitt, tvö, þrjú, fjögur ár, eða hvað það verður. Mér finnst rétt að skoða hvort það sé hægt að fara einhverja hagkvæmari leið, a.m.k. þar til fangelsið verður risið. Meðal annars mætti skoða að taka í notkun fangelsiseiningar sem eru klárar. Þekktar eru einingar eins og einingar í hótelum og mætti skoða þá leið þar til nýja fangelsið er risið.
En svona í lokin þá er rétt að hafa það í huga að þeir fangar sem eiga rétt á að vera áfram á landinu koma aftur út að lokinni afplánun og þá skiptir miklu máli að það bíði þeirra eitthvað, að það sé einhver móttaka og búnaður sem tryggir að þeir komist í vinnu og geti þá komið út í samfélagið og orðið nýtir þjóðfélagsþegnar.