157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

Fangelsismál.

[16:16]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hæstv. ráðherra fyrir svör sín hérna áðan sem voru góð og gáfu góða innsýn í málin og eins langar mig að þakka hv. þingmönnum fyrir þátttöku í þessari umræðu. Það var gott að heyra að undirbúningurinn sé kominn á það stig að útboð séu að fara að hefjast og það glitti í framkvæmdir. Sama með fangelsið á Sogni. Eins og við heyrðum er hæstv. ráðherra líka greinilega að hugsa um hvernig hægt sé að flýta fyrir því að erlendir fangar sem ekki eiga tengsl við landið komist fyrr úr afplánun og til síns heimalands, sem liðkar fyrir á biðlistanum sem er gríðarlega langur. Hv. þm. Sigríður Andersen spurði: Af hverju sitja menn í fangelsi? Þetta er einmitt spurningin sem ég hef mikið spurt sjálfa mig og sérstaklega í umræðunni undanfarið, þegar við höfum verið að ræða ýmist hvernig barnaverndarmál hafa farið illa forgörðum og hvernig meðferðarúrræði fyrir ungt fólk eru heldur ekki fullnægjandi, þá finnst mér einhvern veginn eins og samfélag okkar hafi hreinlega bara skilað svolítið auðu þegar kemur að fólki sem stendur að einhverju leyti illa í samfélaginu og þarfnast aukins aðhalds af okkur hinum. Þetta er auðvitað sorglegt en ég treysti því að með þessari miklu umræðu sem hefur verið undanfarið þá sé ákveðin vakning að eiga sér stað og við förum að vinna í því að styðja betur við fólk, alveg frá því að börn koma í heiminn, hjálpa foreldrum sem standa einhverra hluta vegna höllum fæti við að verða betri foreldrar og geta staðið vel með börnunum sínum og skilað þeim sem sterkari einstaklingum út í samfélagið. Svo þurfa auðvitað öll kerfin okkar að virka og eins og hv. þm. Víðir Reynisson sagði: Færibandið þarf að vera sterkt og við megum hvergi missa boltann. Ég held að ef við förum í svona aðgerðir þá þurfum við minna af fokdýrum plássum í öryggisfangelsum. Þetta tekur auðvitað tíma en einhvers staðar þarf að byrja.

Ég sé að ég er komin fram yfir tímann, en mig langar bara að enda á því að bæta við einni aukaspurningu til hæstv. ráðherra varðandi samstarf á milli ráðherra, (Forseti hringir.) því auðvitað er þetta ekki einungis verkefni dómsmálaráðuneytisins, þetta snýr t.d. að mennta- og barnamálaráðherra: (Forseti hringir.) Er einhver ráðherranefnd um þennan málaflokk eða stendur til að svoleiðis nefnd verði skipuð?