þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Sú umræða sem hefur farið fram hér í þingsal um þetta mál hefur verið öll hin ágætasta. Það eru ekki bara þingmenn stjórnarandstöðunnar sem hafa tekið þátt í henni, það er líka þakkarvert að þingmenn stjórnarflokkanna hafa lagt í þessa umræðu og tekið þátt í henni, bæði með ræðum og andsvörum, og það hefur verið til þess að skýra ýmislegt, svo ekki sé meira sagt. En ég vil nota tækifærið í þessari seinni ræðu minni að nefna það að ég sakna þess hins vegar mjög að hæstv. ráðherrar hafa ekki tekið þátt í þessari umræðu, einkum og sér í lagi formenn ríkisstjórnarflokkanna sem hljóta að hafa miklar og sterkar skoðanir á þessu máli sem þeir hafa lýst sem mjög stóru máli. Það er kannski ekki síst vegna þess að í umræðunni hérna um þetta mál hingað til þá virðist enginn geta viðurkennt að vilja fara í Evrópusambandið. Menn vísa hér hver um annan þveran til vilja þjóðarinnar og að þjóðin eigi að fá að ráða en, virðulegur forseti, ég hlýt að benda á það að hér inni situr fólk í þeirri sérstöku stöðu að hafa verið kosið til þess eins að setja þjóðinni lög og leggja fram sýn og stefnumörkun í ýmsum málum, m.a. þessu og þess vegna finnst mér það skjóta skökku við að jafnvel hæstv. forsætisráðherra geti ekki svarað því hvort hann vilji fara í Evrópusambandið. Hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hefur hins vegar lýst því yfir í fréttum að hún og hennar flokkur, Flokkur fólksins, vilji ekki ganga í Evrópusambandið. Hins vegar í fyrirspurnum hér fyrr í dag fannst mér þessi sami hæstv. ráðherra slá í og úr með það og vísa til vilja þjóðarinnar. Allt er þetta mjög undarlegt og engu svarað um það hvernig þjóðkjörnir fulltrúar ætla að vinna að málum sem mögulega þjóðin — ekkert endilega helmingur þjóðarinnar eða meiri hluti þjóðarinnar eða verulegur meiri hluti þjóðarinnar — tekur ákvörðun um eða lýsir yfir stuðningi sínum við ákveðna vegferð sem er í andstöðu við sjónarmið þessara sömu leiðtoga stjórnmálaflokka hér á landi.
En hvað um það. Hér liggur fyrir þessi tillaga til þingsályktunar sem er ekki efnismikil og vekur upp miklu fleiri spurningar en hún svarar. Ég ítreka það sem ég hef áður sagt, ég vona að hv. utanríkismálanefnd leggi raunverulega vinnu í að svara þessum spurningum. Það er þó eitt sem kemur fram í greinargerð og er mjög mikilvægt. Það er vísað til kosningalaga þar sem gert er ráð fyrir að haft sé samráð við landskjörstjórn um orðalag og framsetningu þeirrar spurningar sem lagt er til að verði lögð fyrir kjósendur í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Svo því sé haldið til haga þá er það allsendis óvíst og ég myndi segja að það séu litlar líkur á því að spurningin sem lögð yrði fyrir þjóðina 29. ágúst yrði eins og hún er sett fram í þessari þingsályktunartillögu, með leyfi virðulegs forseta: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Svarmöguleikarnir eru tveir, annar er: „Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“ Hinn er: „Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“ Mér er til efs að landskjörstjórn, eftir að hafa ráðfært sig við sérfræðinga í t.d. skoðanakannanageiranum og þá sem þekkja til þessara mála betur en ég og alveg örugglega líka frumvarpshöfundar, samþykki að þessi spurning sé nógu skýr til að hægt sé að leggja hana óbreytta fyrir þjóðina. Þær viðræður sem áttu sér stað á sínum tíma voru líka aðlögunarviðræður, það var ferli um aðlögun. Það þarf að koma fram í þessari spurningu í ágúst raunverulega hvað það þýðir. Hvað felur það ferli í sér sem tæki við ef þjóðin myndi samþykkja að fara í þessar viðræður? Þetta finnst mér mikilvægt.
Mér finnst hérna að lokum — ég hef svo lítinn tíma hér, þetta er alveg fráleitlega stuttur tími, en ég bendi á að hér kemur fram í greinargerð að það sé umtalsverð hætta á að aflsmunir ráði í auknum mæli úrslitum í samskiptum ríkja og ríkjahópa, það sé þróunin í alþjóðamálum. Það er einmitt þess vegna sem (Forseti hringir.) framkvæmdastjóri Evrópusambandsins, von der Leyen, benti á það í síðustu viku að það ætti að vera umhugsunarefni fyrir Evrópusambandið (Forseti hringir.) að breyta einmitt reglum um ákvarðanatöku innan þess þannig að aflsmunir muni ráða. Það er sem sagt (Forseti hringir.) í bígerð hjá Evrópusambandinu og mikilvægt að fólk átti sig á því.
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn um að gæta að ræðutíma.)