157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:38]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Við ræðum eitt af stærri málum sem hefur komið upp í þinginu á undanförnum árum og má að mörgu leyti kannski líkja við EES-samninginn að því leyti að þetta er stórt og mikilvægt mál sem varðar grundvallarhagsmuni okkar Íslendinga. Það kemur mér á óvart, frú forseti, þegar þingsályktunartillagan og greinargerðin eru lesin, eins og 3. kaflinn sem er kannski að mörgu leyti efnislega uppistaðan í þingsályktunartillögunni, er þetta einhvern veginn þannig sett upp að þetta snúist um varnir og öryggi Íslands, um varnir og öryggi í Norður-Atlantshafi, að við göngum í Evrópusambandið til að verja stöðu okkar út á við og það er svolítið sérstök nálgun að mínum dómi. Við höfum margoft rætt í þingsal að það er langt í land með að Evrópusambandið verði öflugt varnarbandalag eða öryggisbandalag út frá hefðbundnum öryggissjónarmiðum sem við ræðum um. Það er þannig að um 80% af fjárframlögum til varna innan NATO koma frá þeim löndum sem standa utan við Evrópusambandið. Í NATO eru í dag 32 ríki eftir að Svíar og Finnar gengu inn. Þar af eru 23 Evrópusambandsríki sem leggja til um 20% af því fjármagni sem lagt er til varnar- og öryggismála í Evrópu. 80% fjárframlaganna koma frá þeim löndum sem standa utan Evrópusambandsins og eru innan NATO.

Það er gríðarlega mikilvægt að við höfum þetta í huga þegar við erum að ræða þessi mál og þegar þetta er sett í þann búning að þetta snúist um — eins og mér hefur fundist hæstv. utanríkisráðherra ræða um þetta mál og undirbúningur undanfarna mánuði verið við þessa þingsályktunartillögu sem liggur hér frammi — þetta varnar- og öryggishlutverk. Ég hef lagt áherslu á það mjög lengi að meginhlutverk okkar varðandi þessi mál er að fræða en ekki hræða, fræðum almenning um þessi mál en förum ekki í það að hræða almenning og búa til þá stemningu að við þurfum að ganga í Evrópusambandið til að verja landið, til að verja okkar stöðu.

Ég vil aðeins koma inn á fundinn í gær í Osló í Noregi um mikilvægi þess að við eigum gott samstarf við Kanada. Kanada er öflugt ríki innan NATO. Við erum líka með Norðmennina sem eru í þessu samstarfi utan Evrópusambandsins eins og Kanada. Síðan erum við með Breta og þeir eru með um 10% af öllu fjármagni sem rennur til varnar- og öryggismála innan NATO. Ég held að við eigum að horfa á það og síðan eigum við að horfa á NORDEFCO og JEF og styrkja það samband og að fá Kanadamenn af fullum þunga inn í JEF, það væri mjög áhugaverð nálgun.

Ég vil útiloka þennan hluta frá umræðunni eða að þetta mál sem sem snýr að öryggis- og varnarmálum yrði a.m.k. borið fram með málefnalegri hætti. Við treystum á og gerum enn á tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin, samningur sem verður 75 ára 5. maí næstkomandi, eftir sex, sjö vikur. Lykilatriði. Síðan erum við í NATO. Við höfum verið að efla NORDEFCO, Norðurlandaþjóðirnar í varnar- og öryggismálum í gegnum NORDEFCO og síðan erum við orðin hluti af JEF-viðbragðssveitunum. Þetta er okkar nálgun varðandi þessi mál.

Sá sem hér stendur hefur raunverulega, a.m.k. síðustu 20 árin eftir að ég fór að kynna mér þessi mál sem snúa að Evrópusambandinu, efnahagsmálum og þeirri nálgun hvort Ísland eigi að vera hluti af Evrópusambandinu, alltaf sagt nei við þeirri hugmynd. Ég held að það sé bara hægt að taka þetta svolítið út frá því sem kanslari Þýskalands, Friedrich Merz, hefur verið að segja, sagði í góðri ræðu í Davos og síðan margoft í mörgum ræðum sem hafa verið haldnar af hálfu hans núna undanfarnar vikur þar sem hann, kanslari Þýskalands, talar um raunverulega slæma efnahagsstöðu Evrópu. Hann er að kvarta yfir því. Hann vitnar í Draghi-skýrsluna, um samkeppnishæfnina, og hefur t.d. varðandi þennan þátt bent á og hefur lagt fram í þýska þinginu mál um að lengja leyfi fyrir því að brunahreyfill megi vera í bílum til 2035 í staðinn fyrir 2030, eins og fyrri ríkisstjórn Þýskalands lagði fram. Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, veit að Þýskaland á gríðarlega mikið undir því að bílaiðnaðurinn sé til staðar í landinu. Það er aflvél Þýskalands. Aflvél Þýskalands er bílaiðnaðurinn og aflvélin í Evrópusambandinu er náttúrlega Þýskaland. Þess vegna er áhugavert í allri umræðunni núna þegar kanslari Þýskalands varar við þeirri stöðu sem er komin upp innan Evrópusambandsins, hvernig samkeppnishæfni í Evrópu er háttað og það skulum við hlusta á. Við skulum horfa á það að síðan Finnar og Svíar gengu inn eftir bankahrunið á Norðurlöndunum og eftir að kalda stríðinu lauk hafa þetta allt verið austur-evrópskar þjóðir sem hafa verið að ganga inn í Evrópusambandið. Þær hafa sínar ástæður fyrir því en það er á allt öðrum forsendum en velmegandi þjóð eins og Íslendingar eru. Það er allt önnur staða.

Síðan vil ég segja, svo það sé alveg ljóst, að sá sem hér stendur hefur verið hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslum ef það er vel skilgreint um hvað þær fjalla. Sá sem hér stendur hefur margoft lagt fram í þinginu þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæði um Reykjavíkurflugvöll, ég held átta sinnum. Sá sem hér stendur treystir þjóðinni. Það þarf hins vegar að vera vel skilgreint hvernig spurningin er lögð fram sem er tekin upp í þjóðaratkvæðagreiðslu þannig að það sé fullur skilningur á hvað viðkomandi spurning inniheldur inn í dæmið. Það er gríðarlega mikilvægt. Þetta er gríðarlega stórt mál og við skulum taka það mjög alvarlega sem við erum að ræða hér að stefnt sé að þjóðaratkvæðagreiðsla verði 29. ágúst, eins og kemur fram í þingskjalinu. Auðvitað er eðlilegt að þetta fari fram frekar í lok september eða október þegar þingið er komið aftur til starfa og við getum átt eðlilega umræðu þegar atkvæðagreiðslan fer fram. Það er sérstakt eins og þetta er lagt fram að þingið hafi ekki verið starfandi í tvo og hálfan mánuð þegar þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram. Það er eðlilegt að það sé umræða í þingsal um þetta mál.

Okkar helstu auðlindir eru með ákveðnum hætti og við þekkjum það að ekkert ríki í Evrópusambandinu á jafn mikið undir auðlindum sínum, er jafn auðlindadrifið. Þá er ég tala um sjávarútveginn, auðvitað hefur landbúnaðurinn mikið að segja og svo eru það orkuauðlindirnar. Það hafa verið gerð stór og mikil mistök innan Evrópusambandsins eins við þekkjum á undanförnum 10–15 árum og Merz kanslari hefur bent t.d. á slæmar ákvarðanir sem voru teknar í Þýskalandi eins og með kjarnorkuverin, með gas- og olíuinnflutninginn og að treysta fullkomlega á Rússa til að bera uppi orkuþörf Evrópu. Við skulum hlusta aðeins á kanslari Þýskalands áður en við förum að hlaupa inn í þetta samband sem hefur verið hnignandi að mínu mati mjög lengi. Við skoðum hagvöxtinn, hvernig þróun efnahagslífs hefur verið og búsetuskilyrði innan Evrópusambandsins sem hafa ekki þróast með þeim hætti sem við höfum séð á Íslandi og t.d. Bandaríkjunum í efnahagslegu tilliti. Þróttur efnahagslífsins og hagvöxtur hefur verið með allt öðrum hætti og miklu daprari innan Evrópusambandsins.

Frú forseti. Ég sé að það er ekki einfalt að tala um þetta eða klára sig á tíu mínútum í þessari umræðu. En stóra atriðið hins vegar í þessu máli (Forseti hringir.) snýr að 3. kafla þingsályktunartillögunnar. Við skulum fræða en ekki hræða almenning um þessi mál sem snúa að öryggismálum þjóðarinnar og dýpka þá umræðu. En þá finnst mér líka eðlilegt (Forseti hringir.) að þingið sé starfandi þegar við tökum þá umræðu þegar líður að atkvæðagreiðslu.

(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutíma).