þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Við ræðum nú þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þetta er auðvitað stærsta mál, ekki þessa þings heldur líklega þessa kjörtímabils og þessarar ríkisstjórnar. Ef þessu verður játað þá munu taka við tímar hér á Íslandi sem munu markast auðvitað af þessu aðildarferli næstu árin, frú forseti, þannig að hér er um ekkert smámál að ræða. Minnugur þess hvernig stjórnarþingmenn og stjórnin, hæstv. forsætisráðherra og margir aðrir forystumenn ríkisstjórnarinnar töluðu fyrir kosningar um verkefnin fram undan, þá voru helstu verkefnin aldrei þau að við ættum að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið heldur að ná niður verðbólgu og ná niður vöxtum og verja atvinnustigið í landinu. Þetta voru verkefnin fram undan nema hugsanlega hjá Viðreisn. Eftir rúmlega eitt ár við völd hefur ríkisstjórnin því miður gefist upp við þetta verkefni. Hún hefur gefist upp, hún hefur lagt upp laupana, hún hefur gefist upp. Við skulum fara að tala við Evrópusambandið, við skulum beina sjónum fólksins í landinu að einhverju öðru og við skulum kljúfa þjóðina í umræðum um hugsanlega aðild að Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin, frú forseti, hefur gefist upp á verkefninu sem hún var kjörin til að taka að sér.
Aðdragandinn að þessu hefur svo sem verið fyrirsjáanlegur vegna þess að hæstv. utanríkisráðherra og fleiri ráðamenn ríkisstjórnarinnar hafa verið meira og minna, frú forseti, meira og minna í Brussel síðustu marga mánuði. Þaðan fáum við fréttirnar. Þar gerast hlutirnir og síðan birtast þeir hér á Íslandi, aðallega í fjölmiðlum. Seint og um síðir fáum við hér á löggjafarþinginu að vita fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar eins og þessa þingsályktunartillögu. Viðreisn var eini ríkisstjórnarflokkurinn sem hafði það á stefnuskrá sinni hér fyrir kosningar, og fór þó ekki hátt með það, að Ísland ætti að vera aðili að Evrópusambandinu. Ég spyr, frú forseti: Er Viðreisn ein í þessari vegferð? Treystum við, frú forseti, forystu Viðreisnar? Treystum við forystu hennar til að leiða þetta? Treystum við forystu Viðreisnar til að leiða þetta samningaferli sem við erum að fara að horfa upp á? Treystir þjóðin forystu Viðreisnar til að leiða þessar samningaviðræður? Hún sýnist vera ein. Hér hafa ekki þingmenn og sérstaklega ekki og alls ekki forystumenn annarra stjórnmálaflokka í stjórninni, þ.e. Flokks fólksins og Samfylkingar, komið upp í ræður t.d. núna í þessari umræðu um þessa þingsályktunartillögu. Viðreisn stendur ein í þessari baráttu. Treystum við Viðreisn, treystum við hæstv. utanríkisráðherra til að leiða þessa baráttu?
Frú forseti. Minnug þess að hér fyrir nokkrum mánuðum eða vikum þá leiddi hæstv. utanríkisráðherra samningaviðræður um hlutdeild Íslands í makrílstofninum og gaf stórlega eftir, þá spyr ég: Treystum við hæstv. utanríkisráðherra til að leiða þessar samningaviðræður? Hún gaf stórlega eftir og hefur fengið mikla ádeilu fyrir. Treystum við henni, treystum við hæstv. utanríkisráðherra til að leiða þessar viðræður? Treystum við Viðreisn sem er svona aukaflokkur í þessari ríkisstjórn, ekki stærsti flokkurinn? Eigum við að treysta þeim fyrir að leiða þessar viðræður? Þau dreymir um þetta daga og nætur, að komast í Evrópusambandið, vera í Brussel og senda frá sér fyrirskipanir og ályktanir hingað til Íslands. Evrópusambandið er á hnignunarstigi, frú forseti. Atvinnuleysi meðal ungs fólks er í hæstu hæðum, nýsköpun með minnsta móti og hreinn flótti úr álfunni þegar kemur að nýjustu uppgötvunum, t.d. á sviði gervigreindar. Þangað vill Viðreisn ana.
Ríkisstjórnin, frú forseti, treystir ekki þjóðinni fyrir fyrirliggjandi upplýsingum um málið, treystir ekki þjóðinni fyrir staðreyndum málsins. Í fyrsta lagi er ekki hægt að halda áfram viðræðum sem hefur verið slitið. Hér er um nýjar viðræður að ræða. Þeir treysta ekki þjóðinni fyrir því að hér er um nýjar viðræður að ræða. Meira að segja orðalagið í spurningunni er auðvitað rangt að þessu leytinu til. Eðli viðræðnanna er það að við erum að sækja um aðild á grundvelli þeirra laga og reglna sem gilda í Evrópusambandinu. Umsókn um aðild að Evrópusambandinu er um aðild að Evrópusambandinu. Það er umsókn. Það er ekki umsókn um að Evrópusambandið lagi sig að þeim lögum sem gilda í umsóknarríkinu. Þeir eru ekki að fara að aðlaga sig að okkur. Við erum að fara að segja þeim hvernig við getum uppfyllt það að geta orðið aðilar að sambandinu. Það er bara einfalt. Evrópusambandið er ekki að ganga í Ísland. Stjórnarflokkarnir treysta ekki þjóðinni fyrir réttum upplýsingum um þetta mál, t.d. að það eru engar varanlegar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins. Engar varanlegar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins. Þessu er þjóðinni ekki treyst fyrir heldur er farið undan í flæmingi og þessari spurningu svarað með einhverjum útúrsnúningum. Það eru engar varanlegar undanþágur. Þeir treysta ekki þjóðinni fyrir þeim upplýsingum að íslenskur sjávarútvegur og landbúnaður myndu falla undir sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins, það er svo einfalt. Þeir halda að þeir geti fengið einhverja sérstaka meðferð á þessu sviði. Það er ekki þannig, frú forseti. Og íslenskur orkubúskapur, svo ekki sé talað um hann, starfsemi Landsvirkjunar — þar yrðum við að laga okkur að orkustefnu Evrópusambandsins en ekki þeirri stefnu sem við höfum byggt upp hér um orku og miðlun orku. Þeir treysta ekki þjóðinni fyrir því að gæsla landamæranna yrði að samrýmast reglum Evrópusambandsins en ekki íslenskum hagsmunum á hverjum tíma. Íslenskir hagsmunir myndu þurfa að víkja fyrir hagsmunum Evrópusambandsins á því sviði, á sviði landamæra. Ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni fyrir því að árleg framlög Íslands munu hlaupa á tugum milljarða króna, enda yrðum við með auðugustu ríkjum þessa sambands. Við erum að leggja mikið með okkur. Hverjar eru þær upphæðir, frú forseti? Er það upplýst? Nei, menn eru bara í þoku þegar að því kemur. Þar er engin svör að fá. Ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni fyrir upplýsingum um þetta. Hún treystir ekki þjóðinni.
Þessi innantóma yfirlýsing um að þeir treysti þjóðinni er einungis til að breiða yfir það — með lævíslegum aðdróttunum um að þeir sem telja að hag þjóðarinnar sé betur borgið utan ESB geri það ekki —að þeir halda villandi upplýsingum að þjóðinni um þetta mál. Þeir halda villandi upplýsingum að þjóðinni um þetta mál. Hver eru samningsmarkmið Íslands? Það er bara eitthvert leyndarmál. Þegar menn eru spurðir um þetta hérna hjá ríkisstjórninni þá koma bara einhver svona kannski já og ef til vill svör. Hver eru samningsmarkmið Íslands í þessum samningaviðræðum? Treystum við Viðreisn til að setja þau markmið eftir að þessari atkvæðagreiðslu lýkur? Treystum við hæstv. utanríkisráðherra fyrir að koma með þau markmið? (Gripið fram í: Nei. ) Treystum við Viðreisn til að leiða þessar samningaviðræður? Treystum við Viðreisn til að skipa í þessar samninganefndir? Treystum við Viðreisn fyrir þessu máli?