þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu sem var mjög athyglisverð að mörgu leyti. Varðandi bæði aðdraganda atkvæðagreiðslunnar og eftirmála hennar. Ég sé í greinargerð með tillögunni að ef menn segja já við þessari atkvæðagreiðslu þá er samt langur vegur eftir, hvort hv. þingmaður sé ekki sammála mér í því að það er ekki nóg að kjósa um hvort við eigum að ganga í Evrópusambandið heldur þarf einnig að breyta stjórnarskránni. Það er nú bara þannig í stjórnarskránni að það þarf að rjúfa þing og boða aftur til kosninga. Það eru því enn einar kosningar sem þetta þarf að fara í gegnum, þ.e. þeir sem eru hlynntir Evrópusambandsaðild yrðu þá að vinna þær kosningar líka, ekki bara aðildarkosningarnar, hvort hv. þingmaður sé ekki sammála mér í þessu.
Annað sem ég ætlaði að spyrja hv. þingmann að var varðandi þessa upplýsingagjöf sem ég tel vera kannski af skornum skammti og svolítið í þoku eins og ég var að reyna að koma að í minni ræðu hér áðan, öll þessi samningsmarkmið sem menn gefa ekki upp og er mikið óljóst um, hvort hv. þingmaður sé sammála mér í því. Það verður skipuð einhver samninganefnd og þar fer hæstv. utanríkisráðherra auðvitað með vald til að skipa þá nefnd og mun leiða þær viðræður, hvort hv. þingmaður treysti utanríkisráðherra eftir að hún t.d. gaf stórlega eftir í nýlegum makrílsamningnum bara núna í vetur þar sem hún gaf eftir hlut Íslands eins og frægt var orðið.
(Forseti (EÁs): Forseti vill biðja þingmenn í hliðarsölum um hljóð.)