157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:36]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir gott seinna andsvar. Það er bara þannig að þegar almenningur fær hlutlausar og góðar upplýsingar og tekur afstöðu með tilliti til þeirra þá er almenningi algerlega treystandi. Þess vegna heldur hæstv. ríkisstjórnin þessu fram, að hér sé bara um kaffispjall að ræða og það sem verður kosið um í sumar skipti í rauninni engu máli. En það er alveg ljóst að við getum treyst þjóðinni. Við sáum það í Icesave þar sem þjóðin hafnaði því að greiða skuldir óreiðumanna. Þar var þjóðinni treystandi. Ef við fengjum þær upplýsingar sem þetta mál á skilið upp á yfirborðið og menn væru ekki að tala um og búa til einhverja frasa, að kíkja í pakkann og hitt og þetta, þetta eru dæmigerð umbúðastjórnmál. Það sama á við um þann geira sem ég kem úr, umbúðanám, allt of mikið af námi íslenskra barna gengur út á umbúðanám sem lítur vel út á yfirborðinu en skilar engu. Þess vegna erum við í þeirri stöðu að 40% nemenda eru ekki með grunnfærni í lesskilningi eftir tíu ára skyldunám.

Þetta mál hér einkennist af einhverju leikriti. Hér kemur ráðherra og talar niður það sem stendur á heimasíðu ESB af því að það sé 14 ára gamalt. Hér kom hæstv. ráðherra í pontu og talaði það niður að upplýsingar sem eru í fullu gildi núna væru eitthvað verri af því að þær eru 14 ára gamlar. Hér er alveg augljóst að ríkisstjórnin — enda mæta hvorki Samfylkingin né Flokkur fólksins hér til leiks. Þetta fólk vill ekki láta sletta á sig einu né neinu. Ríkisstjórnin og þingmeirihlutinn er skíthræddur við þjóðina.