157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:38]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Í minni seinni ræðu ætla ég að koma aðeins inn á landbúnaðarhlutann sem mörgum hefur orðið tíðrætt um hér í þessari umræðu og reglulega verið bent á ákveðna ánægjuvog finnskra og sænskra bænda sem búa við sérstök skilyrði sem er hinn heimskautabundni stuðningur sem kallaður er, þ.e. aukinn stuðningur til þeirra sem eru norðan við 62. breiddargráðu. Þegar þú verður hluti af Evrópusambandinu þá gengst þú undir sameiginlega landbúnaðarstefnu sambandsins og Svíar og Finnar hafa heimild frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins þess efnis að mega veita ákveðinn stuðning til þeirra bænda sem eru norðan við 62. breiddargráðu. Margir halda að þessi heimild sem Finnar og Svíar hafa sé varanleg en því fer fjarri. Heimild Finna og Svía er jú ákveðin langtímaheimild en t.d. eins og er núna þá gildir heimild Finna til ársins 2027 og Svía til ársins 2028. Það er síðan undir Evrópusambandinu komið, framkvæmdastjórninni komið, hvort þessi heimild sé síðan framlengd. Það er ekkert í hendi, engan veginn. Síðan verður að hafa það í huga að þegar þú gengur inn, verður hluti af sambandinu, þá ertu sömuleiðis hluti af sameiginlegri landbúnaðarstefnu og þar af leiðandi er frjálst flæði landbúnaðarafurða milli landamæra. Tollverndin sem við Íslendingar höfum haft í gegnum árin, sem er okkar meginstoð í stuðningskerfi landbúnaðarins, hún er fyrir bí. Það er margt sem hangir á spýtunni þegar við erum að fjalla um þetta og það er ekki eingöngu hægt að benda á að einhverjir bændur í Finnlandi og Svíþjóð séu glaðir og hamingjusamir með það að hafa gengið í Evrópusambandið. Ég hef svo sem ekki séð þær mælingar en aftur á móti er það þannig að til þess að geta lifað af í samkeppni er heimaríkinu, þ.e. Svíum og Finnum, veitt þessi heimild til að verja sína bændur með fjárstuðningi til að standast eða alla vega reyna að standa af sér þann innflutning þannig að vörur þeirra séu samkeppnishæfar.

Það er sömuleiðis eitt gríðarlega mikilvægt atriði sem við þurfum að ræða hérna sem snýr að óheftum innflutningi á lifandi dýrum. Það er hluti af því sem þarf að horfa til. Við þekkjum öll þá baráttu sem við Íslendingar höfum tekið í gegnum árin til að verja okkar búfjárstofna og sömuleiðis baráttuna sem við tókum hér sem sneri að sýklalyfjaónæmi. Það er ekki bara af því bara að við fórum í þessa vegferð. Þessi vegferð var farin til að verja okkar búfjárstofna og við þekkjum öll þær reglur og mikilvægi þess að verja okkar mikilvægu og hreinu stofna. Íslenski hesturinn er sennilega einn okkar fremsti og besti sendiherra á erlendri grundu um víða veröld og það að fara þá leið að leyfa innflutning á lifandi dýrum sem hugsanlega getur haft neikvæð áhrif á lýðheilsu og heilsu okkar búfénaðar er alvarlegt mál og þarf að taka verulega alvarlega. Það er ekki komið inn á það einu orði í þeirri þingsályktunartillögu sem hér er um að ræða.

Virðulegur forseti. Þetta er stórmál og þjóðin þarf upplýsingar til að geta tekið upplýsta ákvörðun um það hvort verður sagt já eða nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni næsta haust.