þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég skal viðurkenna að mig langaði einnig til að fara í andsvör við einhverja þingmenn meiri hlutans sem væru að tala fyrir inngöngu en hér er enginn þingmaður meiri hlutans, sem er stórundarlegt í ljósi þess að þetta er eitt stærsta málið hjá þessari ríkisstjórn. En þau eru ekki að taka nein dæmi um það af hverju við ættum að fara þarna inn. Ég hjó eftir því að hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson nefndi þetta með varanlegu heimildirnar og að þær væru engar þegar kæmi að landbúnaðarmálum. Þá langaði mig að spyrja hv. þingmann, af því að hann minnist á ákveðinn tímaramma, þá detta út þessar undanþágur, þær eru bara tímabundnar en Írar eru nú aldeilis búnir að finna fyrir því þegar kemur að sjávarútvegsmálum: Þekkir hv. þingmaður hvort það er ekki rétt að löndin geti kosið um að stytta þennan tíma, þ.e. þú ert með einhverjar tímabundnar undanþágur og svo er hægt að kjósa um það og meiri hlutinn ræður því bara; heyrðu, nú er allt breytt í heiminum, allt breytt í heimsmálunum, Írar eru með sína undanþágu allt of lengi, Finnar allt of lengi með sína undanþágu í landbúnaðarmálum, við viljum ekki hafa þetta til 2030 þannig að við ætlum að kjósa um að þetta verði búið 2028? Þekkir þingmaðurinn þetta eitthvað?
Og að lokum langar mig bara að spyrja: Hverjir eru að mati þingmannsins helstu kostirnir ef við segjum já í ágúst?