157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:53]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans erindi. Hann kom að nokkru leyti inn á það sem ég hyggst gera hluta af máli mínu hér á eftir er varðar landbúnaðinn og nefndi til að mynda það sem hefur stundum verið látið í veðri vaka í umræðunni að séu einhverjar varanlegar undanþágur varðandi þann sérstaka stuðning sem Finnar og Svíar fengu til stuðnings við búrekstur norðan við 62. breiddargráðu. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann varðandi nákvæmlega það mál er hvort þingmanninum sé kunnugt um það hvort að Evrópusambandið þurfi með einhverjum hætti að spyrja Finna og Svía þegar þessi tími rennur út hvort það þurfi eitthvað að semja sérstaklega um það framhald. Eða getur verið, eins og mér býður í grun, að það komi ósköp einfaldlega tilkynning frá Evrópusambandinu um að ekki standi ekki til að framlengja þessa heimild til þessara sérstöku stuðningsaðgerða?

Annað sem mig langar að nefna við hv. þingmann er að hann kom aðeins inn á það í erindi sínu að flutningur lifandi dýra milli ríkja væri skilgreindur innan Evrópusambandsins sem hluti af fjórfrelsinu. Halldór Runólfsson fyrrverandi yfirdýralæknir tók þátt í þessari vinnu á sínum tíma og skrifaði grein núna bara fyrir fáeinum dögum síðan þar sem hann gerir þetta mál einmitt að umtalsefni sínu og talar um rauða línu. Þarna er lína sem aldrei má, ekki undir nokkrum kringumstæðum, fara yfir. Það þýðir, svona þýtt yfir á það sem við köllum bara kaffistofuspjall, yfir á venjulegt götumál, að þar er ekki um neitt að semja. Hv. þingmaður var nú svo magnaður að draga fram besta ambassadorinn okkar í sinni ræðu, íslenska hestinn. Mig langar að enda á spurningu til hv. þingmanns: Hvaða afleiðingar telur hann að veiki sem heitir hestahósti gæti haft á stofnstærð íslenska hestsins?